Fara í efni
Mannlíf

Söguganga um slóðir Nonna í Innbænum

Söguganga verður um slóðir Jón Sveinsson, Nonna, í Innbænum á morgun, fimmtudag.

„Nonnahús er kennt við rithöfundinn Jón Sveinsson, Nonna. Hann var hvorki eigandi hússins né bjó þar lengi. Hvers vegna er húsi kennt við hann? Hvernig stóð á því að Nonni var sendur til náms í Frakklandi tæplega 12 ára? Saga foreldra og systkina Nonna er ekki síður áhugaverð. Þessar sögur verða til umfjöllunar í gönguferð á slóð Nonna fimmtudaginn 18. ágúst,“ segir í tilkynningu frá Minjasafninu.

„Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri, leiðir gönguna sem tekur rúma klukkustund. Ganga hefst við Nonnahús kl. 17 og lýkur þar rúmum klukkutíma síðar. Gangan er þátttakendum að kostnaðarlausu. Tilvalið fyrir alla fjölskylduna.“