Fara í efni
Mannlíf

Smíði og flutningur Lamba á Glerárdal 1975

Lambi á ferðinni. Á efri myndinni dregur Tucker snjóbíll Baldurs Sigurðssonar (Snjókötturinn) Lamba á Glerárdal vorið 1975 en á þeirri neðri dregur Tucker snjóbíll Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri, gamla Lamba aftur til byggða vorið 2016. Nýi Lambi sést í bakgrunni.

Lambi, skáli Ferðafélags Akureyrar (FFA), sem smíðaður var og fluttur á Glerárdal árið 1975, veitti mörgum skjól og dugði vel í 39 ár. Nýr skáli sem ber sama nafn leysti þann gamla af hólmi vorið 2014.

Í tilefni 90 ára afmælis Ferðafélags Akureyrar í apríl birtir akureyri.net pistla Hjalta Jóhannessonar annan hvern laugardag til vors, þar sem eitt og annað úr sögu félagsins er rifjað upp. Hjalti, sem er í ritnefnd Ferða, blaðs FFA, og í afmælisnefnd, segir frá gamla Lamba og birtir grein Jóns Dalmanns Ármannssonar sem kom fyrst fyrir sjónir lesenda í Ferðum 1976.

„Hann var mörgum gott ferðamarkmið þegar gengið var eða ekið inn á Glerárdal,“ segir Hjalti Jóhannesson um gamla Lamba og bætir við: „Enn mun gamli Lambi vera til en sagan segir að hann hafi fengið framhaldslíf sem hænsnakofi fram í Eyjafjarðarsveit!“

Pistill dagsins: Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975