Fara í efni
Mannlíf

Skóflustunga tekin að Garðinum hans Gústa

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Fyrsta skóflustungan var í morgun tekin að Garðinum hans Gústa, körfuboltavelli á skólalóð Glerárskóla. Það voru Ásgerður Jana og Berglind Eva, dætur Ágústs heitins og eiginkonu hans, Guðrúnar Gísladóttur, sem sáu um verkið. Körfuboltamaðurinn Júlíus Orri, sonur Ágústs og Guðrúnar, gat ekki tekið þátt því hann er á landsliðsæfingum í Reykjavík

Viðstaddir athöfnina voru m.a. foreldrar Ágústs og systur, foreldrar Guðrúnar, körfuboltavinir Ágústs sem standa að gerð vallarins, og bæjarstjórinn á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir.

Garðurinn hans Gústa er verkefni sem nokkrir vinir Ágústar H. Guðmundssonar heitins standa að. Reistur verður veglegur körfuboltavöllur með áhorfendastúku og afhentur Akureyrarbæ í nafni Ágústar, þegar aðstaðan verður fullbúin.

Ágúst, sem lést í upphafi árs langt fyrir aldur fram, markaði djúp spor í sögu körfuboltaíþróttarinnar á Akureyri. Hann lék með Þór á yngri árum, þjálfaði síðan hjá félaginu til fjölda ára og er sigursælasti þjálfari þess frá upphafi. Ágúst starfaði mest við þjálfaun í íþróttahúsi Glerárskóla og því fannst vinum hans við hæfi að völlurinn yrði við þann skóla.

„Ágúst var harður Boston Celtics aðdáandi og því lá það beinast við að körfuboltavöllurinn fengi nafnið Garðurinn,“ sagði í tilkynningu frá hópnum fyrr á árinu, en heimavöllur Boston Celtics hefur langi gengið undir þessu nafni; Boston Garden var ein frægasta keppnishöll í sögu bandarísku NBA deildarinnar en núverandi höll félagsins kallst TD Garden.

Vert er að minna á fjársöfnun vegna verkefnisins, en þeir félagar ætla að safna fyrir helmingi kostnaðar en Akureyrarbær leggur til hinn helminginn. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0302-26-000562. Kennitala: 420321-0900.

Mæðgurnar Berglind Eva og Guðrún Gísladóttir eftir skóflustunguna í morgun. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Garðurinn hans Gústa verður nyrst á lóð Glerárskóla, íþróttasvæði Þórs handan girðingarinnar.