Fara í efni
Mannlíf

Sjómenn Samherja og ÚA fengu Mottumars-sokka

Samherji og Útgerðarfélag Akureyringa hafa sent öllum sjómönnum félaganna sokka sem Krabbameinsfélagið selur í tengslum við Mottumars. „Þannig vilja félögin vekja athygli á skilaboðum átaksins um að þekkja og bregðast við einkennum sem gætu orsakast af krabbameini,“ segir á vef Samherja.
 
Mottumars er árlegt átak Krabbameinsfélags Íslands í baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. Staðreyndin er að þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. 
 
 
Þessi skemmtilega mynd var tekin í vikunni um borð í einu skipa félaganna, sokkarnir góðu njóta sín vel í veðurblíðunni og morgunsólinni á miðunum.
Fjárhagslegur stuðningur almennings og fyrirtækja er grundvöllur þess að Krabbameinsfélagið geti starfað og unnið að því að ná enn betri árangri varðandi það að draga úr fjölda krabbameinstilvika, fækka dauðsföllum af völdum krabbameina og bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.“
 
Á vef Samherja segir er tekið undir slagorð Krabbameinsfélags Íslands í auglýsingaherferð þessa marsmánaðar: „Ekki humma fram af þér heilsuna.“