Fara í efni
Mannlíf

Silkitoppa – fallegur, litskrúðugur spörfugl

Í vikulegum pistlum Sigurðar Arnarsonar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga hefur undanfarin misseri annað slagið verið fjallað um fugla sem sjá má í skógum. Í dag er fjallað um einn slíkan. „Flækingur sem sum árin er mjög algengur en önnur koma ekki nema örfáir. Stundum hefur fuglinn verpt í íslensku skóglendi og þegar skógarnir þroskast meira er nokkuð líklegt að tegundin setjist hér að í fyllingu tímans,“ segir Sigurður í kynningu á pistlinum, en fuglinn sem um ræðir er Silkitoppa.
 
„Þetta verður síðasti fuglapistill okkar í bili en aldrei er að vita nema við tökum þráðinn upp seinna ef áhugi er á því,“ segir Sigurður.
 

Meira hér: Silkitoppa