Fara í efni
Mannlíf

Siggi Gunnars ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2

Sigurður Þorri Gunnarsson, nýr tónlistarstjóri Rásar 2. Ljósmynd: RÚV

Akureyringurinn Sigurður Þorri Gunnarsson – Siggi Gunnars – hefur verið ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2 Ríkisútvarpsins. Hann hefur í nokkur ár verið dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvarinnar K100.

„Eftir tæp átta ár af krefjandi en dásamlega skemmtilegu uppbyggingarstarfi með frábæru fólki á K100 er kominn tími á nýjar áskoranir á nýjum stað. Sá staður er RÚV okkar allra þar sem ég mun fljótlega taka við starfi tónlistarstjóra Rásar 2,“ skrifar Siggi á Facebook síðu sína í morgun.

„Litli-Siggi var bara sex ára þegar hann fékk að fylgjast með Gesti Einari að störfum á RÚVAK en þaðan sendi hann út þáttinn Hvíta máva að loknum hádegisfréttum. Eftir það var ekki aftur snúið, útvarpsbakterían var komin til að vera. Almannaútvarp hefur verið mér hugleikið lengi, en bæði BA ritgerðin mín og MA verkefnið mitt fjölluðu einmitt um hlutverk almannaútvarps og í meistaranáminu í Bretlandi lagði ég sérstaka áherslu á að kynna mér vel útvarpshluta BBC.“

Svo segir Siggi: „Nema hvað, tuttugu og sjö árum eftir að hafa fylgst með Gesti Einari tala við þjóðina, hef ég störf á RÚV og verð einmitt í loftinu á sama tíma og fyrirmyndin var á árum áður – á milli kl. 12:40 og 14. Sannkallað draumastarf að koma að rekstri vinsælustu útvarpsstöðvar landsins, vinna með íslensku tónlistarfólki og fá tækifæri til að kynna helstu strauma og stefnur í tónlist. Magnað hvernig örlagadísirnar eiga það til að snúast á sveif með manni.“

Í frétt á vef RÚV segir svo:

„Starfið var auglýst í byrjun mars og gengið frá ráðningu í gær. Í rökstuðningi fyrir ráðningunni kom fram að Sigurður Þorri uppfyllti allar hæfniskröfur mjög vel og sér í lagi hefur hann til að bera menntun á sviði fjölmiðlafræði og útvarps ásamt því að búa yfir mikilli reynslu af dagskrárgerð og tónlistarstjórn.

Sigurður er menntaður fjölmiðlafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með meistaragráðu í fjölmiðlafræði með áherslu á útvarp frá Háskólanum í Sunderland á Englandi. Hann hefur unnið hjá Árvakri síðan 2017 og fyrir utan störfin í útvarpinu hefur hann meðal annars skrifað fréttir tengdar tónlist og afþreyingu og stýrt vinsælum bingóþáttum á mbl.is.“