Selur 500 síma safn – Farsímasaga Íslands
Um 500 farsímar sem spanna stóran hluta íslenskrar farsímasögu eru nú til sölu á Akureyri. Eigandinn, Gylfi Gylfason, vill selja safnið í heilu lagi og vonast til að það fái nýtt líf þar sem almenningur getur notið þess. Hann segir gömlu símana hafa ótrúlegt aðdráttarafl og kalla fram minningar hjá fólki.
„Þetta eru nútímafornminjar,“ segir Gylfi um safnið sem inniheldur fjölbreytt úrval farsíma frá þeim tíma þegar símaframleiðendur kepptust við að prófa ný form, liti og lausnir. Sérstaklega á það við um Nokia en símar þaðan eru áberandi í safni Gylfa. Áður en snjallsímarnir komu til sögunnar þá var mikil tilraunamennska á farsímamarkaðnum. Sömu eða sambærileg tæki birtust t.d. í fjölmörgum útfærslum, litum og formum. Maður horfir á einn snjallsíma í dag og þá hefur maður nánast séð þá alla,“ segir Gylfi og bætir við að eldri farsímarnir hafi aftur á móti myndað mun fjölbreyttari flóru.
.
Gylfi vill selja farsímasafnið sitt til einhvers sem vill stilla því upp og leyfa öðrum að njóta, t.d. til veitingastaðar, eða einhvers sem er í rekstri og vantar eitthvað til þess að trekkja enn fleiri viðskiptavini að.
Ævisagan rakin út frá farsímum
Gylfi starfaði lengi við sölu og viðgerðir á farsímum en hann rak fyrirtækið Símabæ í Reykjavík á árunum 1997 til 2018. Safnið varð til samhliða þeim rekstri og um tíma reyndi hann að hafa farsímana til sýnis í versluninni. Það gekk þó ekki alveg eins og hann hafði séð fyrir sér því gömlu símarnir vöktu einfaldlega of mikla athygli. „Fólk fékk bara eitthvað fortíðarflipp,“ segir Gylfi og rifjar upp að viðskiptavinir hafi komið inn í búðina og rekið auga á síma í safninu, síma eins og þeir höfðu sjálfir átt og þá byrjuðu þeir að rifja upp liðna tíð. Gylfi, sem hafði raðað tækjunum upp í tímaröð, segir að fólk hafi gjarnan gengið meðfram safninu og rakið eigin ævisögu út frá símunum. „Stundum stóð fólk þar í korter eða hálftíma og rifjaði upp sögur úr einkalífinu. Svo gat farið að það gekk út og hafði steingleymt því sem það ætlaði upphaflega að kaupa. Og ég hugsaði bara að ég nennti þessu ekki því þetta er ekki að borga húsaleiguna hjá mér,“ segir Gylfi sem pakkaði safninu niður í geymslu. Kassarnir eru núna á Akureyri og bauð Gylfi safnið nýlega til sölu.

Margir muna enn eftir fyrsta farsímanum sínum enda þóttu fyrstu farsímarnir stórmerkileg nýjung. Þrátt fyrir að vera nútíma forngripir þá eru margar týpur orðnar að verðmætum safngripum.
„Banasíminn og fleiri í uppáhaldi“
Eins og áður segir telur safnið um 500 síma, þótt hluti þeirra séu svokallaðir „dummy“-símar, eða nákvæmar eftirlíkingar sem notaðar voru í útstillingar verslana. Þeir líta út eins og raunverulegu tækin og eru í sömu stærð og þyngd, en innihalda ekki virkan síma. Innan um eru hins vegar fjölmörg tæki sem Gylfi telur hafa sérstakt tækni- og menningarsögulegt gildi. Þar má finna dæmi um fyrstu snjallsímana og síma sem kynntu til sögunnar ýmsa eiginleika sem þóttu byltingarkenndir á sínum tíma.
Þegar Gylfi er spurður hvaða sími sé í mestu uppáhaldi nefnir hann nokkra. Nokia 1610 var fyrsti síminn sem sameinaði góða rafhlöðuendingu og lága bilanatíðni sem gerði sölu símatækja auðveldari. Í kjölfarið kom Nokia 5110 sem lagði línurnar fyrir næstu ár þar á eftir gagnvart stærð og viðmóti. Hannnefnir einnig Nokia 8110, „bananasímann“ svokallaða sem varð frægur meðal annars fyrir tengsl sín við kvikmyndina The Matrix. Og svo er það Nokia 3310. Gylfi segir hann hafa verið einstaklega góðan síma, endingargóðan og auðveldan í viðgerð. „Maður vissi alltaf hvað var að þeim. Það var hægt að halda þessu gangandi endalaust.“

Gylfi bjó á Akureyri í ein 20 ár en kallar sig fyrrverandi Akureyring þar sem hann hefur eytt mestum hluta ævinnar fyrir sunnan. Hér er hann á markaði að skoða gamla síma eftir nútíma raftækjasýningu í Berlín.
Íslenska farsímasagan
Gylfi hefur áður reynt að selja farsímasafnið og segir að reglulega fái hann fyrirspurnir varðandi það hvort ekki sé hægt að kaupa einstaka síma úr því. Það kemur þó ekki til greina. „Ég ætla ekki að fara að plokka úr þessu. Þetta er safn.“ Hann telur að safnið gæti til dæmis hentað sem skreyting á veitingastað, bar eða tengt öðrum rekstri þar sem það yrði aðdráttarafl í sjálfu sér. Reynsla hans úr símaversluninni hafi sýnt honum hversu sterk viðbrögð gömlu tækin geta kallað fram. Sérstaklega eigi það við um fólk sem sjálft upplifði hraða þróun farsímans og getur tengt ákveðin tímabil í eigin lífi við símana sem það átti. „Fólk tengir svo við þetta,“ segir Gylfi sem vonast til þess að einhver sjái möguleika í safninu, taki það að sér í heilu lagi og hafi það til sýnis með einhverjum hætti, þar sem tækin séu brot af íslenskri samtímasögu. „Þetta er náttúrulega íslenska farsímasagan. Þetta eru allt tæki sem voru á þessum markaði.“ Áhugasamir geta tengst Gylfa hérna.

Gamlir farsímar hafa ákveðið aðdráttarafl og kalla fram minningar hjá fólki. Hér má sjá brot af safni Gylfa.