Segjast vilja gefa BSO húsið til Hafnarfjarðar!
Hljómsveitin Hvanndalsbræður, sem er þekkt fyrir absúrd, kaldhæðinn og mjög íslenskan húmor, segist vilja gefa BSO-húsið til Hafnarfjarðar sem hefur verið vinabær Akureyrar í 27 ár. Eins og akureyri.net hefur sagt frá þá hefur Akureyrarbær auglýst BSO húsið fáist gefins. Þiggi enginn húsið að gjöf verður það rifið.

Frakkar gáfu Bandaríkjamönnum Frelsisstyttuna á sínum tíma. Akureyringar gætu gefið vinabæ sínum BSO húsið! Mynd: Þorgeir Baldursson
Hvanndalsbræður sögðu nýlega frá þeirri óvenjulegu hugmynd á Facebooksíðu sinni að húsið yrði gefið til Hafnarfjarðar, sem er vinabær Akureyrar, en sveitin er að fara að halda tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði þann 22. maí. Á Facebook er hugmyndin orðuð svona:
„Eins og margoft hefur komið fram ætlum við Hvanndalsbræður að spila í Bæjarbíói í Hafnarfirði 22. maí. Á æfingu í gærkvöldi kom upp sú hugmynd að færa Hafnfirðingum einhvern þakklætisvott fyrir þær móttökur sem við höfum fengið þar undanfarin ár.Upp komu ýmsar hugmyndir, til dæmis FH-búningur saumaður úr gæruskinni sem kæmi sér vel svona í upphafi móts.Líkneski af Fjarðarkaupum, tálgað út í birki úr Kjarnaskógi.Risastórt skilti sem á stendur... IKEA er ekki hér... ofl.Að lokum kom alveg brilljant hugmynd og erum við í þessum töluðu orðum á fundi með bæjarapparatinu.Ef samningar nást ætlum við að færa Hafnfirðingum BSO að gjöf.“
Akureyri.net hefur ekki heimildir fyrir því hvort Hvanndalsbræðrum sé alvara með þessa hugmynd eða ekki! En þess má geta að Akureyri og Hafnarfjörður hafa verið vinabæir síðan árið 1999.