Fara í efni
Mannlíf

Segja elritegundir vera vannýttar hér á landi

Undanfarin misseri hafa reglulega birst pistlar um elri og elritegundir á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. „Þar sem við erum sannfærð um að elritegundir séu vannýttar í skógrækt, garðrækt og landgræðslu ætlum við að halda þessari umfjöllun áfram,“ segir Sigurður Arnarson í pistli vikunnar sem birtist í dag.

„Fyrir nokkrum vikum birtum við fyrsta pistil okkar um evrópskt gráelri. Við vinnslu hans kom í ljós að okkur liggur mikið á hjarta um þessa elritegund sem hefur verið lengur í ræktun á Íslandi en annað elri. Því má líta á þennan pistil sem framhald fyrri pistils um tegundina,“ segir Sigurður. „Í þessari grein förum við eftir þeirri gömlu og nánast horfnu málvenju að hafa eitt heiti yfir tegundina og annað yfir einstök tré eins og við sögðum frá í þessum pistli. Við notum heitið elri yfir tegundir og þar með köllum við þessa tegund gráelri. Þegar við fjöllum um einstök, stæðileg tré tölum við um ölra.“

Meira hér: Gráelri frá Evrópu – Annar hluti