Fara í efni
Mannlíf

Samvera með hestum í nýju námsúrræði

Með tengsl við tauminn er verkefni þar sem samvera og samvinna með hestum er nýtt til að efla félagsfærni, sjálfstraust, sjálfsþekkingu og persónulegan þroska.

Nýtt náms- og velferðarúrræði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 12 til 16 ára hefur verið í tilraunakeyrslu á Akureyri undanfarna mánuði með jákvæðum árangri. Verkefnið, sem ber heitið Með tengsl við tauminn, er ætlað ungmennum sem glíma meðal annars við kvíða, skólaforðun, lágt sjálfsmat eða aðrar áskoranir sem geta gert hefðbundið skólastarf erfitt. Frá þessu er sagt í frétt á vef Akureyrarbæjar.

Verkefnið fer fram í rólegu umhverfi hesthússins þar sem unnið er í litlum hópum. Þar fá þátttakendur tækifæri til að mynda tengsl við hesta og takast á við raunveruleg verkefni sem ætlað er að efla öryggi, ábyrgð og félagsfærni. Áhersla er lögð á reynslunám og markvissa tengslamyndun þar sem þátttakendur vinna meðal annars með samskipti, samvinnu og trú á eigin getu. Markmiðið er að styðja ungmenni sem standa höllum fæti í skóla og hjálpa þeim að taka skref í átt að bættri líðan og aukinni þátttöku í daglegu lífi.

Stuðningsúrræði en ekki reiðnámskeið

Verkefnið byggir á svokallaðri Equine-Assisted Learning-aðferðafræði, þar sem samvera og samvinna með hestum er nýtt til að efla sjálfstraust, sjálfsþekkingu og félagslega færni. Aðstandendur verkefnisins leggja áherslu á að um sé að ræða náms- og stuðningsúrræði en ekki reiðnámskeið eða hefðbundna meðferð.

Verkefnið hefur verið þróað í samstarfi við Akureyrarbæ frá því í janúar og hefur reynslan verið afar jákvæð. Foreldrar þátttakenda hafa lýst ánægju með verkefnið og segja að börnin hafi sýnt merki um meiri ró, aukið öryggi og sterkari trú á eigin getu.

Andrea Diljá Ólafsdóttir, sérkennari og stofnandi verkefnisins, hefur hlotið styrki til áframhaldandi þróunar þess. Hún segir markmiðið vera að hjálpa börnum að finna styrkleika sína og upplifa annars konar námsumhverfi þar sem tengsl, reynsla og raunveruleg verkefni séu í forgrunni. Að hennar sögn geta litlar breytingar í öruggu og jákvæðu umhverfi haft mikil áhrif á sjálfstraust, líðan og þátttöku ungmenna í samfélaginu.