Salt – Einfalt hráefni en eitt það mikilvægasta
Þráinn Lárusson kemur víða við í fjölbreyttum matarpistlum sínum fyrir akureyri.net. Pistlarnir birtast alla laugardaga og að þessu sinni fjallar Þráinn um salt.
„Á okkar tímum er salt ódýrt og fáanlegt um allan heim, en þannig hefur það ekki alltaf verið,“ segir hann. „Vegna mikilvægis salts fyrir mannslíkamann, en það viðheldur meðal annars vökvajafnvægi hans, hefur það öldum saman verið mjög dýr verslunarvara og var um tíma notað sem gjaldmiðill. Á latínu er salt, sal og er orðið salarium, sem þýðir laun, sagt til komið vegna þess að hluti af launum rómverskra hermanna var greiddur með salti, hvað sem til er í því. Það má að minnsta kosti fullyrða að salt hafi verið verðmætt allar götur frá tímum Forn-Grikkja og fram á síðustu öld.“
Þráinn rifjar upp að í apókrýfu ritum Gamla testamentisins er salt talið meðal frumþarfa mannsins. „Flest eru þau skrifuð á síðustu tveim öldum fyrir Krist. Vegna þess hve maðurinn hefur mikla þörf fyrir salt hefur það verið notað í líkingarmáli til að undirstrika mikilvægi ákveðinna hluta, samanber „að vera salt“ einhvers. Kristur sagði við lærisveina sína í fjallræðunni, „Þér eruð salt jarðar“ og vísaði þar til mikilvægis þeirra sem flytja boðskap trúarinnar.“
- Pistill Þráins: Saltaðu nú!