Fara í efni
Mannlíf

Risotto verður sífellt vinsælla hérlendis

„Vinsældir risotto hafa vaxið mjög hér á landi á undanförnum árum í kjölfar aukins áhuga á ítalskri matargerð. Í fljótu bragði mætti halda að um graut sé að ræða enda minnir útlitið á þunnan grjónagraut.“

Þannig hefst vikulegur pistill Þráins Lárussonar um mat. Pistlaröðina köllum við MATARÞRÁ-INN og akureyri.net leyfir sér að mæla með því að allir áhugamenn um mat lesi pistla Þráins vandlega því þeir eru frábærir!

Hann heldur áfram: „Það sem gerir risotto áhugavert er að fylgja þarf nákvæmri aðferð við gerð þess svo sterkjan úr grjónunum myndi þessa samfelldu, bundnu heild. Aðferðin byggist á því að bæta heitu soði við í skömmtum á meðan hrært er þannig að sterkja losnar úr grjónunum og bindur vökvann. Grjónin þurfa að halda lögun sinni og vera mjúk að utan og með örlitlum kjarna.“

  • Pistill Þráins:

Risotto – aðferð, ekki uppskrift