Rifkelsstaðatorfan er til mikillar prýði
„Í þjóðskrá eða islendingabok.is finnst enginn einstaklingur með nafninu Rifkell. Í Eyjafjarðarsveit, nánar tiltekið í gamla Öngulsstaðahreppi, neðarlega í hlíðum Möðruvallafjalls, skammt sunnan hins hrikalega Munkaþverárgils, stendur hins vegar bærinn Rifkelsstaðir. Þar má heita margbýlt og standa þar nokkur íbúðarhús á torfunni neðan þjóðvegarins. Það elsta er aldargamalt í ár.“
Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í þeirri geysivinsælu röð, Hús dagsins. Það er annars pistill hans um hús sem verða 100 ár á þessu ári.
Arnór Bliki heldur áfram: „Upprunalegt heiti Rifkelsstaða mun vera Hripkelsstaðir (það finnst heldur enginn Hripkell á islendingabok.is). Jörðin telst væntanlega landnámsjörð en hún lá raunar undir Þverárjörðina og þar var til forna hof Freys. Þverá þessi hlaut síðar nafnið Munkaþverá, en eðlilega voru engir munkar þar fyrstu aldirnar; þeir komu vitaskuld með klaustrinu, sem kom með kristninni.“
Hann vitnar síðan í Víga-Glúms sögu: „Þórir hét maður. Hann bjó á Espihóli. Hann var sonur Hámundar heljarskinns og Ingunnar Helgadóttur hins magra. Hann átti Þórdísi Kaðalsdóttur. Þeirra börn voru Þórarinn og Þorvaldur krókur er bjó á Grund í Eyjafirði og Þorgrímur er bjó í Möðrufelli og Ingunn er átti Þórður Freysgoði og Vigdís er átti Sigmundur. […] Hof Freys var þar fyrir sunnan ána á Hripkelsstöðum (Víga-Glúms saga: 8).“
Þannig eru fyrstu ábúendur Rifkelsstaða sem sögur fara af þau Ingunn Þórisdóttir, langafabarn Helga magra og Þórður Össurarson Freysgoði. „Þau hafa búið hér á síðari hluta 10. aldar, en Freysgoðinn lést um 995, fimm árum fyrir kristnitöku hérlendis. (Dánardægur Ingunnar virðist óþekkt). Gegnum hofið á Rifkelsstöðum og Þórð hefur náðst einstakt samband við Frey, því á Rifkelsstöðum var akurinn Vitaðsgjafi, sem var þeirrar náttúru gæddur, að verða aldrei ófrær.“
Pistill Arnórs Blika: Rifkelsstaðir; Ia og IIa – elsta íbúðarhúsið