Fara í efni
Mannlíf

Ragga Rix selur boli með boðskap

Ragga Rix, sem sigraði á dögunum í Rímnaflæði, rappkeppni unga fólksins, hefur hafið sölu á bol sem minnir á boðskap sigurlagsins um að óumbeðnar typpamyndir séu ekki í lagi.

Ragnheiður Inga Matthíasdóttir – Ragga Rix – er 13 ára Akureyringur sem samdi og flutti lagið Mætt til leiks í Rímnaflæði. Texti lagsins fjallar meðal annars um þann veruleika sem margar stelpur á hennar aldri lifa við, að strákar sendi óumbeðnar typpamyndir. Bolurinn er áminning um að þetta sé ekki í lagi en á honum er lína úr laginu: Sorrý gaur, nenni ekki að sjá á þér typpið!

„Það var stór áfangi fyrir mig að vinna Rímnaflæði. Ég lagði mikla vinnu í lagið og að undirbúa mig fyrir keppnina. Nú er keppninni lokið en mig langaði til að boðskapurinn í laginu myndi lifa aðeins lengur. Þannig kom hugmyndin að þessum bol. Svo er þetta bara illa nettur bolur!“ segir Ragnheiður Inga.

Bolurinn fæst bæði í gráu og hvítu og er fáanlegur í Fornbókabúðinni Fróða á Akureyri og hér í vefverslun.

Raggi Rix mætti til leiks og sigraði