Fara í efni
Mannlíf

Rafmagnslaust í hluta Glerárhverfis

Verslunarmiðstöðin Sunnuhlíð stendur við samnefnda götu og húsin fjær eru við Borgarhlíð. Mynd: Þorgeir Baldursson

Rafmagn fór af Hlíðahverfi og hluta bæði Holta- og Giljahverfis á Akureyri um fimmleytið í dag og skv. upplýsingum frá Norðurorku má gera ráð fyrir rafmagnsleysi í töluverðan tíma í viðbót vegna bilunar – jafnvel í eina til tvær klukkustundir, þegar þetta er skrifað laust fyrir klukkan 18.00.

UPPFÆRT kl. 18:18 – Fljótlega eftir að frétt akureyri.net birtist tókst að gera við bilunina, mun fyrr en áætlað var, og rafmagn á nú að vera komið á alls staðar.

Upplýsingar á vef Norðurorku: Góð ráð komi til þjónusturofs