Fara í efni
Mannlíf

„Pylsur eru ekki bara pylsur“

Rúnar Ingi Guðjónsson kjötiðnaðarmaður leiðbeinir nemendum í pylsugerðinni. Mynd: Hilmar Friðjónsson/VMA.

Nemendur í 2. bekk í matreiðslu í Verkmenntaskólanum á Akureyri fræddust um pylsugerð á dögunum þegar Rúnar Ingi Guðjónsson, kjötiðnaðarmaður og gæðafulltrúi í Kjarnafæði-Norðlenska, miðlaði úr viskubrunni sínum um þá listgrein í kjötniðnaði sem pylsugerð er.

Svo einfalt er málið ekki að pylsur séu bara pylsur! Pylsugerð er ákveðin listgrein í kjötiðnaði og víða um lönd er hún í hávegum höfð og úrvalið er lyginni líkast. Enda er það svo að hægt er að fara óteljandi leiðir í að búa til pylsur. Hugmyndafluginu eru engar skorðar settar í pylsugerð,“ segir meðal annars í frétt á vef VMA um þessa hlið á matreiðslunáminu.

Nemendur þreifuðu sig áfram með ólíkar uppskriftir þar sem grunnhráefnið var úr ýmsum áttum, svínakjöt, lambakjöt, kalkúnn og kjúklingur. Þar segir einnig að fitan sé mikilvæg, um það bil fimmtungur af hrærunni. Ofan í það kemur svo salt og alls kyns krydd, eilítið kartöflumjöl til að líma hræruna vel saman, eins og þar segir. Fjölbreyttir pylsuréttir voru síðan bornir á borð fyrir gesti. 

Myndir Hilmars Friðjónssonar frá pylsugerðinni má finna í albúmi á vef VMA - sjá hér.