Pizzan flytur norður og Uppinn verður til
„Það var á Akureyri í upphafi vetrar árið 1987 sem fyrsta alvöru pizzan norðan heiða leit dagsins ljós. Í ágúst sama ár kom Bárður Halldórsson að máli við ungan matreiðslumann – höfund þessarar greinar – um að kaupa kaffihúsið Café Torg við Ráðhústorg.“
Þannig hefst matarpistill Þráins Lárussonar sem akureyri.net birtir í dag. Það er annar pistill hans um pizzu, þá vinsælu ítölsku uppfinningu, sem stundum er nefnd pitsa hérlendis, jafnvel flatbaka.
„Eftir svarinu þurfti hann ekki lengi að bíða. Kaffihúsið hafði nýlega fengið vínveitingaleyfi - sem var sjaldgæft á þeim tíma - og í hugskoti þessa unga manns kviknaði hugmynd: að opna ekta ítalskan pizzustað með eldofni. Þann 5. nóvember 1987 opnaði síðan Uppinn, ekki fyrsti pizzustaðurinn á Akureyri, en sá fyrsti sem tók þetta alla leið og sá þriðji á Íslandi sem notaði alvöru eldofn.“
- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
Pistill Þráins í dag: Pizzan flytur norður