Pipar – Eitt vinsælasta og dýrmætasta kryddið
Þráinn Lárusson kemur víða við í matarpistlum sem akureyri.net hefur birt á laugardögum síðan í janúar á þessu ári. Í dag fjallar Þráinn um pipar, sem hann segir mikilvægasta krydd sögunnar.
Pistill dagsins er fullur fróðleiks og næsta víst að eitt og annað kemur mörgum á óvart. Hér eru dæmi um skemmtileg fróðleiks(pipar)korn:
- Verð á pipar var feikna hátt í Evrópu á miðöldum og hann mikið notaður sem gjaldmiðill
- Piparinn var t.d. notaður til að greiða skatta, tolla og jarðarleigu og sem heimanmundur
- Hafnarverkamönnum sem unnu við uppskipun á þessum dýra varningi var óheimilt að hafa vasa á flíkum sínum
- Enn er hefð fyrir því á Bretlandseyjum að konungsfjölskyldunni sé greitt fyrir jarðarleigu með pipar þó að eingöngu sé um táknræna athöfn að ræða
- Ritz hótelið í London greiddi drottningunni t.d. árlega, eitt piparkorn í leigu fyrir hótelgarðinn!
Evrópubúar héldu lengi vel að svartur og hvítur pipar kæmu hvor af sinni plöntunni, segir Þráinn í pistlinum. „Fyrstur til að koma með kenningu um að svo væri ekki var munkur sem uppi var á þrettándu öld,“ skrifar hann og bætir því við að kenning munksins hafi reynst rétt, en þó ekki ástæðan sem hann gaf upp fyrir litamuninum! Nánar um það í pistlinum.
- Pistill dagsins: Nú skulum við pipra
Þetta er síðasti pistill Þráins fyrir sumarfrí en hann mætir galvaskur til leiks á ný með haustskipunum!