Fara í efni
Mannlíf

Öruggur sigur SA í fyrsta leik tímabilsins

Markaskorarar SA í baráttunni í dag; Silvía Rán Björgvinsdóttir, fyrir miðri mynd, braut ísinn eftir aðeins 31 sekúndu og Hilma Bóel Bergsdóttir (88), gerði seinna markið, einnig í fyrsta leikhluta. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Kvennalið SA vann lið SR með tveimur mörkum gegn engu í opnunarleik Toppdeildar kvenna í íshokkí í kvöld. SA hafði góð tök á leiknum og sigurinn eiginlega aldrei í hættu. Bæði mörkin komu í fyrsta leikhluta. 

Silvía Rán Björgvinsdóttir opnaði Íslandsmótið með marki eftir aðeins 31 sekúndu. Hún dansaði þá með pökkinn í gegnum vörn SR og skoraði af stuttu færi. Hilma Bóel Bergsdóttir, sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir SA eftir nokkurra ára veru hjá Fjölni, skoraði annað mark SA um miðjan fyrsta leikhlutann og staðan 2-0 að honum loknum. Þannig urðu reyndar lokatölur leiksins.

Sunna Björgvinsdóttir, sem kom heim í SA á ný í sumar eftir að hafa spilað í Svíþjóð síðustu ár, skýtur pökknum að marki Reykvíkinga í dag.

Báðum liðum tókst þó að koma pökknum í mark andstæðinganna, fyrst SR í öðrum leikhluta og þá SA í þeim þriðja, en í báðum tilvikum var dæmt brot á sóknarmenn.

Julianne Thomson í marki SR kom í veg fyrir að sigurinn yrði stærri enda sóttu SA-konur oft hart að marki gestanna og áttu 43 markskot á móti 12 markskotum SR. Shawlee var einnig örugg í marki SA og stöðvaði þau skot sem náðu framhjá varnarmönnum.

SA

Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 1/1, Hilma Bóel Bergsdóttir 1/0, Sólrún Assa Arnardóttir 0/1.
Refsingar: 10 mínútur
Varin skot: Shawlee Gaudreault 12 af 12 (100%).

SR

Refsingar: Engar.
Varin skot: Julianna Thomson 41 af 43 (95,35%).