Fara í efni
Mannlíf

Orrablót – Heldurðu að mig langi að lenda í þér?

„Ég var svo gæfusamur að alast upp í fjölbýlishúsi, eða bara blokk, eins og við alþýðufólkið úr Þorpinu köllum það, Smárahlíð 16, íbúð F, eða var það f? Hvernig stendur á því að ég man þetta ekki?“

Orri Páll Ormarsson blaðamaður mætir til leiks enn á ný í pistlaröðinni Orrablót; fjórði pistillinn birtist á Akureyri.net í dag. Þar segir af nágrönnum hans í æsku, m.a. Þórólfi Guðnasyni, síðar sóttvarnalækni, og unglingnum sem lenti gjarnan upp á kant við póstkassana í sameigninni um helgar. Svo var það Gummi;  Orri rifjar upp atvik sem setið hefur í honum allar götur síðan ...

Smellið hér til að lesa pistil Orra Páls