Fara í efni
Mannlíf

Opna kaffihús og skyrbar á Glerártorgi

Kaffihús og skyrbar verða opnuð á Glerártorgi í næsta mánuði; Espressobarinn & Skyr600. Staðirnir verða í vesturhluta hússins, við hlið Lyfja og heilsu.
 

„Stofnendur kaffihússins eru Guðmundur Ómarsson, Karen Halldórsdóttir, María Hólmgrímsdóttir og Pálmi Hrafn Tryggvason og hafa þau staðið í ströngu við hönnun og útfærslu á þessu nútímalega kaffihúsi þar sem gestum mun meðal annars standa til boða að skoða rafræna matseðla og gera pantanir og greiða í gegnum farsíma,“ segir í tilkynningu.

„Staðurinn mun bjóða upp á kaffi frá Te og Kaffi og einnig verður skyrbarinn í samstarfi við Örnu og mun vinna með laktósafríar vörur.“