Fara í efni
Mannlíf

Opna GoKart braut á svæði Bílaklúbbsins

Opnuð verður GoKart-braut á Akureyri 1. júní og starfrækt fram á haust. Um er að ræða einu braut sinnar tegundar á landinu en GoKart hefur ekki verið í boði á Íslandi síðan árið 2018 þegar brautinni í Garðabæ lokaði. Þetta kemur fram á Vísi í morgun.

Gerðar hafa verið þó nokkrar tilraunir við að reka GoKart-braut á Íslandi í gegnum árin; í Garðabæ, Reykjanesbæ, á Korputorgi og fleiri stöðum. 

„Nú ætla Hákon Gunnar Hákonarson og Baldvin Þór Ellertsson að reyna að koma þessari sívinsælu afþreyingu aftur af stað á Íslandi,“ segir á Vísi.

Brautin verður utandyra, á svæði Bílaklúbbs Akureyrar og „bílarnir eru með þeim flottari í heiminum“ segir í fréttinni. 

Nánar hér á Vísi.