Fara í efni
Mannlíf

Opna Espressobarinn og Skyr600 í dag

Kaffihúsið Espressobarinn og Skyr600 verður opnað á Glerártorgi í dag.

Stofnendur kaffihússins eru Guðmundur Ómarsson, Karen Halldórsdóttir, María Hólmgrímsdóttir og Pálmi Hrafn Tryggvason. „Þau hafa undanfarið staðið í ströngu við hönnun og útfærslu á þessu nútímalega kaffihúsi þar sem gestum mun meðal annars standa til boða að skoða rafræna matseðla og gera pantanir og greiða í gegnum farsíma,“ segir í tilkynningu frá Glerártorgi.

„Staðurinn mun bjóða upp á kaffi frá Te og Kaffi og einnig verður Skyr barinn í samstarfi við Örnu og mun vinna með laktósafríar vörur. Bjartur Hollanders, kaffibarþjónn, sér um Espressobarinn. Boðið verður upp á beyglur sem eru bakaðar af strákunum í Brauðgerðarhúsi Akureyrar í Sunnuhlíð.“

Staðurinn verður opnaður klukkan 12.00 í dag og opið verður til kl. 17.00. Í dag fá allir frítt gos með keyptum beyglum af matseðli og fyrstu 10 sem mæta á opnunardaginn fá frítt boozt.