Fara í efni
Mannlíf

Opið í Hlíðarfjalli á laugardaginn

Veðurspáin er góð fyrir helgina og því hefur verið ákveðið að hafa opið lengur í sumarparadísinni Hlíðarfjalli en gert var ráð fyrir. Opið verður á laugardaginn, 11. september, klukkan 10.00 til 16.00.

„Fjarkinn verður í gangi og hægt að taka hjólin með sér upp að Strýtu. Margar merktar hjólaleiðir eru í Fjallinu og skemmtileg gönguleið er frá Strýtuskálanum upp á fjallsbrún. Þaðan má sjá vítt og breitt um Norðausturland í góðu skyggni.

Nú er um að gera að nýta tækifærið og stunda holla og góða útivist í Hlíðarfjalli áður en slökkt verður á Fjarkanum og undirbúningur hafinn fyrir skíðavertíðina,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Sunnudaginn 12. september verður síðasta bikarmót ársins í fjallabruni á hjólum. „Mótið hefst kl. 12 og eru áhugasamir hvattir til að mæta í Fjallið, fylgjast með og hvetja keppendur áfram til sigurs.“

Nánari upplýsingar um verð á lyftumiðum og fleira er að finna hér