Mannlíf
Ömmur, kaffibaunir og „kinnalitur“
12.05.2025 kl. 11:30

Enginn ilmur var betri og meiri í endilangri æsku minni en sá sem gufaði upp úr kaffibætisbaukunum hjá ömmum mínum í Gilsbakkavegi og Helgamagrastræti.
Þannig hefst 79. pistill Sigmundar Ernis Rúnarssonar, rithöfundar, sjónvarpsmanns og alþingismanns, í röðinni Akureyri æsku minnar. Nýr pistill birtist á Akureyri.net á hverjum mánudegi.
Í sjálfri endurminningunni er sem maður hafi tekið til fótanna, þegar komið var að húsum þeirra, því það stytti tímann inn í eldhús þar sem lokið var tekið af dósunum í einum grænum hvelli, svo anda mætti að sér alsælunni, yfirmáta góðum export, svari alls sem nefið fengi að njóta.
Pistill dagsins: Export