Mannlíf
Öll skip Samherja í höfn og í jólabúningi
24.12.2025 kl. 06:00
Þrjú skipa Samherja eru við Oddeyrartanga á Akureyri. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Öll skip Samherja komu í land fyrir jól, áhafnirnar eru því heima í jólaleyfi eins og hefð er fyrir og skipin sjálf skreytt í tilefni hátíðarinnar.
Flest skipin liggja við bryggju á Dalvík en einnig á Akureyri og í Hafnarfirði. Síðasta skipið í land var Kaldbakur EA en landað var úr honum á Dalvík á sunnudaginn.
Ísfisktogarar félagsins fara í stutta túra milli jóla- og nýárs til að sjá vinnslum félagsins á Dalvík og Akureyri fyrir hráefni í byrjun nýs árs.
Myndir af skipunum má sjá á vef Samherja