Olga örmagnast – Saga úr heilbrigðiskerfinu
Þriðji pistill Ólafs Þórs Ævarssonar í röðinni Sögur úr heilbrigðiskerfinu, sem hann skrifar fyrir akureyri.net, birtist í dag. Ólafur Þór, geðlæknir til áratuga, vill með sögunum skrifa uppbyggilega gagnrýni á heilbrigðisþjónustuna.
„Ég vil nýta þá þekkingu sem ég hef eftir að hafa starfað svo lengi innan kerfisins og tjá athugasemdir sem ég heyri frá læknum og sjúklingum,“ segir Ólafur.
Í pistli dagsins segir hann sláandi sögu af heimilislækni; konu sem allt frá unglingsárum fann fyrir sterkri köllun um að verða læknir en þróunin sé slæm. „Þetta [er] svo sannarlega ekki það starf eða starfsumhverfi sem Olga hafði látið sig dreyma um forðum eða unnið við fyrstu árin.“
Ólafur nefnir ýmsar ástæður, og segir síðan: „Eftir tólf ára nám og vinnu í áratug var áhuginn fyrir læknisfræðinni horfinn. Hún átti erfitt með að viðurkenna það, að þeirri hugsun skaut æ oftar upp í kollinn á henni, hvort hún ætti að hætta að starfa sem læknir.“
Um skrif sín í pistlaröðinni segir Ólafur: „Ég vona að þetta örvi uppbyggilega umræðu meðal almennings, hagsmunasamtaka, allra heilbrigðisstétta, stjórnmálamanna og stjórnvalda sem geti stuðlað að úrbótum.“
- Pistill Ólafs Þórs: Olga örmagnast