Fara í efni
Mannlíf

Óðinn Svan: „Fannst þetta ganga smurt“

Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans á kosningavöku flokksins á Græna hattinum siðastliðið laugardagskvöld. Hann er orðinn formaður bæjarráðs Akureyrar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans, kemur nýr inn í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningarnar og í meirihlutasamkomulagi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og L-listans kemur fram að Óðinn Svan verður formaður bæjarráðs á kjörtímabilinu. Hann kveðst ánægður með málefnasamning flokkanna í spjalli við blaðamann. „Það var nokkuð góður samhljómur um hvert skyldi stefna og aðalmálið fyrir okkur sem erum búin að vera í meirihluta í sextán ár að við værum ekki að fara kúvenda neinu, að við myndum halda áfram í þeim verkefnum sem við höfum verið í. Þá erum við til dæmis að tala um leikskólamál, kosningabaráttan okkar snerist mikið um unga fólkið, íþróttafélögin og áframhaldandi uppbyggingu þar. Það er ekkert í þessu samkomulagi sem er að fara að stoppa þann kraft sem er í gangi í þessu, þannig að ég er bara mjög sáttur með lendinguna hvað varðar málefnin,“ segir Óðinn Svan aðspurður um hvort L-listinn sé sáttur við sinn hlut í málefnasamkomulaginu.

Hann er spurður um hver sé fyrsta breytingin sem bæjarbúar muni verða varir við þegar nýr meirihluti tekur við keflinu. „Það er auðvitað nýr bæjarstjóri, það er auðvitað það fyrsta sem fólk sér svona útávið,“ svarar Óðinn Svan kankvíslega. „En svo þurfum við bara að halda áfram í þessari vinnu sem hefur verið í gangi. Ég minntist á íþróttamannvirkin, það er auðvitað það sem fólk er mikið að sjá og mikið að tala um. Við ætlum að klára það sem er í gangi upp á KA-svæði og gera það almennilega og fara svo í kröftuga uppbyggingu á Þórssvæðinu. Þetta er það sem margir eru að spá í ef við tölum um einstök verkefni og við ætlum að standa okkur í þessu,“ bætir hann við.

Þú nefndir bæjarstjórann, er einhver sérstök ástæða fyrir því að ráða pólitískan bæjarstjóra núna? Eftir að hafa verið með faglega ráðinn bæjarstjóra lengi? 

„Við vorum ekki með neina sérstaka línu varðandi þetta fyrir kosningar og vildum bíða og sjá hverjir myndu tala saman og hverjar þeirra áherslur væru. En þetta kemur frá Sjálfstæðisflokknum, hann leggur þetta til, og okkur leist bara nokkuð vel á þetta frá upphafi. Ég segi fyrir mína parta, við erum búin að vera með fagráðinn bæjarstjóra í sextán ár og það er kannski bara kominn tími á að prófa eitthvað nýtt,“ svarar Óðinn Svan.

Var þetta ófrávíkjanleg krafa frá Sjálfstæðisflokknum?

„Nei alls ekki, þetta var sett fram sem hugmynd sem við fengum að melta og tókum síðan bara vel í hana. Við erum að klára þetta núna nokkrum dögum eftir kosningar þannig að ef þetta hefði verið mikið þrætuepli þá held ég að við værum ekki hér í dag,“ segir Óðinn Svan. Hann segir aðspurður að það hafi í raun ekki verið neinir átakafletir í viðræðum flokkanna. „Ég hef náttúrlega ekki mikla reynslu í að mynda meirihluta í sveitarstjórn en mér fannst þetta bara ganga smurt,“ sagði Óðinn Svan Óðinsson að lokum.