Oddeyrargata 4 – 110 ára „afmælisbarn“
Oddeyrargata er nokkuð löng gata, um 500 m, sem sker Brekkuna skáhallt ofan við Miðbæinn. Hún er að mestu byggð árin 1915-1935 og við hana standa mörg reisuleg hús á stórum og gróskumiklum lóðum.
„Hún var um 1930, ásamt Brekkugötunni, við efri mörk þéttbýlis. Ofan við byggðina voru beitarlönd en á þessum árum voru kýr á mörgum heimilum í kaupstaðnum,“ segir Arnór Bliki Hallmundsson í nýjum pistli í röðinni Hús dagsins. „Kúm Oddeyringa var smalað upp og niður Oddeyrargötuna sem fékk þannig viðurnefnið Kúagata. Mikið er um trjágróður á lóðum við Oddeyrargötu, raunar má heita svo, að efri hluti hennar sé samfelldur skógur.“
Vill til, segir Arnór Bliki, að húsin við götuna raðast í grófum dráttum í aldursröð upp eftir götunni. „Elstu húsin eru neðst en raunar byggðist megnið af götunni á fáeinum árum, nefnilega 1927-30. Fjögur hús er að finna við götuna, byggð fyrir 1920 og tvö þeirra eru byggð 1916. Það eru hús númer 4 og 6.“ Arnór Bliki fjallar í dag um neðsta húsið vestan megin við götuna.
Pistill Arnórs Blika: Oddeyrargata 4