Fara í efni
Mannlíf

Nýju mennirnir kveiktu neistann og Þór skellti Víkingi

Langþráð gleði! Þórsarar fagna innilega eftir að Ágúst Eðvald Hlynsson gerði fyrra markið í sigrinum á Íslandsmeisturum Víkings í dag. Þórsararnir eru, frá vinstri, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (sem gerði seinna markið), Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Ágúst Eðvald og Peter Ingi Helgason. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Óvæntustu úrslit ársins í Bestu deild karla í fótbolta, og þó víðar væri leitað, litu dagsins ljós á Þórsvellinum í dag, laugardag. Botnlið Þórs, með nýju mennina tvo, Aron Einar Gunnarsson og Gyrði Hrafn Guðbrandsson, í stórum hlutverkum, gerði sér þá lítið fyrir og stöðvaði langa sigurgöngu Íslandsmeistara Víkings með sigri, 2-1, í fyrsta leik 15. umferðar deildarinnar.

Mörkin komu öll á lokakafla leiksins. Ágúst Eðvald Hlynsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson komu Þór í 2-0 á 82. og 89. mínútu en Daði Berg Jónsson minnkaði strax muninn í 2-1. Þórsarar lifðu af taugatrekkjandi sex mínútna uppbótartíma og fögnuðu að vonum vel og innilega þegar Twana Khalid Ahmed, ákveðinn dómari leiksins, flautaði loks til leiksloka.

Þetta er fyrsti sigur Þórs frá 23. apríl, eftir ellefu leiki í röð án sigurs í deildinni en liðið hafði aðeins fengið tvö stig frá því það sigraði Val og Fram í fyrstu og þriðju umferð deildarinnar.

Byrjunarlið Þórs í fyrsta leik Arons Einars Gunnarssonar í efstu deild á Íslandi. Aftari röð frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson, Aron Einar Gunnarsson, Ragnar Óli Ragnarsson, Christian „Greko“ Jakobsen, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Yann Emmanuel Affi. Fremri röð frá vinstri: Kristófer Kristjánsson, Fannar Daði Malmquist Gíslason, Ágúst Eðvald Hlynsson og Einar Freyr Halldórsson.

Þór náði FH að stigum

Þór er nú búinn að ná FH að stigum á botninum, bæði lið eru með 11 stig og FH á erfiðan leik gegn Breiðabliki á mánudagskvöld. KA er með 13 stig, ÍA, ÍBV og Stjarnan 15 hvert og Keflavík 16 í næstu sætum fyrir ofan, og KA heimsækir einmitt ÍBV á morgun.

Ljóst er að Akureyrarslagurinn mánudaginn 27. júlí hefur enn meira vægi en áður eftir þessi óvæntu úrslit og næsta víst að Þórsarar mæta fullir sjálfstrausts á nýja KA-völlinn.

Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson, félagar í landsliði Íslands í fjöldamörg ár, mættust í dag í fyrsta skipti í meistaraflokki hér landi. Á milli þeirra er Sveinn Margeir Hauksson sem Víkingar kölluðu úr láni frá KA á dögunum; þetta var fyrsti leikur hans með Víkingsliðinu.  

Fyrsta tap Víkings í 24 leikjum

Víkingar höfðu ekki tapað leik í deildinni frá 10. ágúst í fyrra, í 23 leikjum í röð, og unnið 21 þeirra og einstökum sigurkafla þeirra er lokið. Segja má að þeir hafi haft efni á þessu tapi en forysta þeirra er eftir sem áður átta stig. Víkingur er með 40 stig, KR 32 og Fram 30 stig í efstu þremur sætunum.

Ekki lengur eins og þögul bíómynd

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs setti nýju mennina Aron og Gyrði beint í byrjunarliðið, sem og þá Yann Affi og Fannar Daða Malmquist Gíslason, en á bekkinn fóru Ásbjörn Líndal Arnarsson, Sigfús Fannar Gunnarsson, Sverrir Páll Ingason og Vilhelm Ottó B. Ottósson.

Áhrif þeirra Arons og Gyrðis komu strax í ljós. „Áður var það stundum eins og að horfa á þögla bíómynd að mynda Þórsleik en Aron og Gyrðir breyttu því,“ sagði Skapti Hallgrímsson ritstjóri Akureyri.net við mig eftir leikinn og það fer ekki á milli mála að þeir tveir geta reynst Þórsliðinu afar dýrmætir í botnbaráttu deildarinnar, sem tók á sig splunkunýja mynd með þessum úrslitum.


FYRRA MARK ÞÓRS
Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði – Víðir Sigurðsson lýsir markinu neðar í greininni. 


Aron tók strax völdin

Aron, sem lék 37 ára gamall sinn fyrsta leik í efstu deild á Íslandi, tók strax völdin á miðsvæðinu hjá Þór, stýrði liðinu þaðan rétt eins og íslenska landsliðinu á árum áður, og það er augljóst að heimkoma hans gefur liðinu gríðarlega mikið.

Sjálfstraustið í liði Þórs var allt annað og meira en undanfarnar vikur. Aron spilaði í 67 mínútur, enda hans fyrsti leikur í nokkrar vikur, en hann skildi greinilega heilmikið eftir á vellinum fyrir samherja sína sem héldu sínum krafti til leiksloka.

Það var greinilega klókt hjá Þórsurum að krækja í Gyrði Hrafn sem lánsmann frá KR. Hann á að baki rúmlega 100 leiki í efstu deild með KR, FH og Leikni R. og kemur því líka með heilmikla reynslu inn í liðið. Nokkuð sem unga og efnilega leikmenn Þórs hefur bráðvantað í ár. Gyrðir kórónaði góðan leik sinn með fallegu skallamarki undir lokin og það innsiglaði í raun sigurinn þó Víkingar hafi svarað að bragði.

Einar Freyr Halldórsson og Aron Einar Gunnarsson í dag. Bæði mörk Þórs komu eftir hornspyrnu Einars Freys.

Loks náði Aron að vinna Gylfa

Margir biðu að vonum með eftirvæntingu eftir því að Aron Einar og hans gamli landsliðsfélagi Gylfi Þór Sigurðsson myndu loksins mætast í deildarleik á Íslandi. Þeir voru saman á vellinum í 55 mínútur en þá var Gylfa skipt af velli. Mest lítið var um árekstra eða baráttu þeirra á milli, enda báðir að mestu staðsettir aftarlega á miðjunni hjá sínu liði. Tvö lítil atvik seint í fyrri hálfleik má tína til en þau breyta örugglega engu um áratuga vináttu. Návígi á hliðarlínunni og síðan einhver smávægileg orðaskipti eftir meiðsli Aron Birkis markvarðar Þórs.

En nú gat Aron loksins fagnað sigri á Gylfa eftir að hafa tapað öllum fimm leikjunum gegn honum þegar þeir mættust í ensku deildakeppninni á árum áður!

Mikið breytt Víkingslið

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga tefldi fram mikið breyttu liði, enda spila þeir nú Evrópuleik á um það bil sjö daga fresti næstu vikurnar. Gylfi Þór Sigurðsson var eini leikmaðurinn sem hóf leik sem var í byrjunarliði Víkings í fyrsta leik deildarinnar í vor og aðeins þrír aðrir sem hófu jafnteflisleikinn gegn Györ í Ungverjalandi á þriðjudaginn voru meðal fyrstu ellefu. Tveir þeirra voru síðan teknir af velli strax eftir fyrri hálfleikinn og þegar Gylfi fór út af eftir 55 mínútur var Ögmundur Kristinsson markvörður einn eftir úr því byrjunarliði.

Fyrirliðinn Oliver Ekroth, Nikolaj Hansen, Óskar Borgþórsson, Karl Friðleifur Gunnarsson og Daníel Hafsteinsson voru ekki í leikmannahópnum, og að sjálfsögðu ekki Elías Már Ómarsson, markahæsti leikmaður liðsins, sem sleit krossband í hné á dögunum.

En hafi eitthvert lið í deildinni efni á slíkum breytingum þá er það Víkingur!

Fyrsti leikur Sveins með Víkingi

Dalvíkingurinn Sveinn Margeir Hauksson lék sinn fyrsta leik með Víkingum sem kölluðu hann heim í vikunni eftir lánsdvöl hjá KA og hans fyrsti leikur fyrir Íslandsmeistarana var því á Akureyri, gegn erkifjendunum í Þór. Unglingalandsliðsmaðurinn Þorri Ingólfsson var í byrjunarliði Víkings í fyrsta skipti og Róbert Orri Þorkelsson sneri aftur eftir langa fjarveru vegna meiðsla, sem og Stígur Diljan Þórðarson sem varamaður í seinni hálfleiknum.

Einhverjir Víkingar kenna eflaust breytingum Sölva um þennan ósigur en ég geri ráð fyrir að Þórsurum sé slétt sama!

Aron Birkir Stefánsson fyrirliði Þórs var öryggið uppmálið í markinu í dag eins og oft áður í sumar.

Aron Birkir góður í markinu

Þórsarar voru kraftmiklir fyrstu 20 mínúturnar og stjórnuðu leiknum að mestu án þess þó að skapa sér teljandi marktækifæri. Víkingar komust smám saman inn í leikinn og sýndu hve hættulegir þeir eru en þrisvar hefðu þeir hæglega getað náð forystunni í fyrri hálfleik. Aron Birkir Stefánsson varði glæsilega frá Róberti Orra og Ármanni Inga Finnbogasyni og Yann Affi bjargaði nánast á marklínu eftir lúmskan skalla Gylfa að Þórsmarkinu.

Víkingar voru tvisvar nærri því að skora um miðjan síðari hálfleik, Yann Affi náði að skalla í horn eftir hörkuskot Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Aron Birkir varði vel frá Valdimar rétt á eftir.

Fyrsta eiginlega færi Þórs kom á 79. mínútu þegar Sigfús Fannar Gunnarsson átti skot af stuttu færi en Gunnar Vatnhamar komst fyrir það og bjargaði Víkingum.

Mikilvægar hornspyrnur Einars

En þetta kveikti greinilega enn frekar í sjálfstrausti Þórsara og markið sem braut upp leikinn kom þremur mínútum síðar. Einar Freyr Halldórsson tók hornspyrnu frá hægri og sveigði boltann út. Ágúst Eðvald fékk hann á vítateigslínu, lék á Víking og skaut að marki, boltinn breytti stefnu af höfði Gunnars Vatnhamars og í netið. Mark sem skráist með réttu á Ágúst því boltinn var í beinni stefnu á markið þó Færeyingurinn hafi gjörbreytt henni. Þór var kominn í 1-0.

Önnur hornspyrna frá Einari Frey, að þessu sinni frá vinstri, færði Þór seinna markið á 89. mínútu. Nú var það eins einfalt og mögulegt er. Flott sending inn á miðjan markteig þar sem Gyrðir reis hæst allra, og er þó ágætlega hávaxinn fyrir, og skoraði með hörkuskalla, 2-0.

Þórsarar fengu ekki að njóta þess lengi að vera tveimur mörkum yfir því Víkingar brunuðu strax í sókn eftir miðjuna. Davíð Örn Atlason sendi fyrir markið frá hægri og Daði Berg Jónsson skoraði með laglegum skalla, 2-1, í fyrsta leik sínum í rúmt ár eftir langa fjarveru vegna meiðsla.


SEINNA MARK ÞÓRS
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson skallar boltann í mark Víkings eftir hornspyrnu Einars Freys Halldórssonar.


Þór: Aron Birkir Stefánsson - Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Ragnar Óli Ragnarsson (Birgir Ómar Hlynsson 46.), Yann Affi, Kristófer Kristjánsson - Einar Freyr Halldórsson, Aron Einar Gunnarsson (Ásbjörn Líndal Arnarsson 68.), Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Fannar Daði Malmquist Gíslason (Sigfús Fannar Gunnarsson 68.) - Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian Jakobsen (Peter Ingi Helgason 46.)

Víkingur: Ögmundur Kristinsson - Sveinn Gísli Þorkelsson, Viktor Örlygur Andrason, Róbert Orri Þorkelsson (Gunnar Vatnhamar 56.), Davíð Örn Atlason - Sveinn Margeir Hauksson, Gylfi Þór Sigurðsson (Valdimar Þór Ingimundarson 56.), Tarik Ibrahimagic (Daði Berg Jónsson 46.) - Ármann Ingi Finnbogason, Aron Elís Þrándarson (Helgi Guðjónsson 46.), Þorri Ingólfsson (Stígur Diljan Þórðarson 71.)

Leikskráin á vef KSÍ

Staðan í deildinni