Nýir nikótínfíklar á meðan stjórnvöld dorma
„Finnst þér ekki einkennilegt, Stefán, að reynt sé að troða nikótíni með góðu eða illu í nánast öll göt á krökkunum okkar og gera þau háð þessu eitri ævilangt meðan stjórnvöld dorma og dilla sér meðal stórveldanna?“
Stefán Þór Sæmundsson mætti til leiks á ný fyrir viku ásamt þeim áhugaverða karakter, Aðalsteini Öfgar. Nýja pistlaröð kallar Stefán einmitt Á spjalli með Aðalsteini Öfgar og spurningin að ofan er upphaf pistils númer 2. Pistlar Stefáns Þórs birtist á akureyri.net á laugardögum.
Aðalsteinn Öfgar heldur áfram:
„Sjáðu til, allir samfélagsmiðlar og margir áhrifavaldar auglýsa nikótínpúða og veip, enda þurfa innflytjendur efnanna að græða sem mest, og svo kveikir maður á sjónvarpinu til að horfa á leik á HM og þá er verið að auglýsa nikótínsprey til að losna við reykingalöngun eða nikótínlausa púða til að herma eftir nikótínpúðum. Hvert er þetta þjóðfélag komið?“
Pistill Stefáns Þórs: Frelsisást og feigðarþrá