Fara í efni
Mannlíf

Ný pistlaröð: Sögur úr heilbrigðiskerfinu

„Þó að Brynhildur sé komin fast að níræðu býr hún ein og sér að mestu leyti um sig sjálf. Hún er vön því, er sjálfstæð, giftist aldrei og vill ekki vera upp á aðra komin og er meinilla við að trufla. Samt eru Binni frændi, ömmubarn systur hennar og konan hans alltaf boðin og búin til aðstoðar. En þau eru komin með þrjú börn og hafa nóg með sitt.“

Þannig hefst pistill Ólafs Þórs Ævarssonar sem birtist í morgun. Hann er sá fyrsti í pistlaröð sem Ólafur Þór skrifar fyrir akureyri.net og hann kallar Sögur úr heilbrigðiskerfinu.

Ólafur Þór er geðlæknir til áratuga og hyggst í pistlunum skrifa uppbyggilega gagnrýni á heilbrigðisþjónustuna með því að segja sögur. „Ég vil nýta þá þekkingu sem ég hef eftir að hafa starfað svo lengi innan kerfisins og tjá athugasemdir sem ég heyri frá læknum og sjúklingum. Ég vona að þetta örvi uppbyggilega umræðu meðal almennings, hagsmunasamtaka, allra heilbrigðisstétta, stjórnmálamanna og stjórnvalda sem geti stuðlað að úrbótum,“ segir hann. 

Pistill Ólafs Þórs: Brynhildur fer á bráðamóttökuna