Fara í efni
Mannlíf

Ný „galdrabúð“ – Kakó, rúnir og töfrakerti

Í Agndofa verslun og vinnustofu verða til sölu ýmsar vörur fyrir nútímanornir, meðal annars kerti sem eiga að auka velgengi.

Ný verslun, Agndofa, opnar í miðbæ Akureyrar á morgun, laugardag. Eigandinn, Sigrún Björg Aradóttir, hyggst bjóða þar upp á handverk og andlegar vörur en einnig samveru og kakóbolla. 

„Þetta er vinnustofa og verslun Agndofa,“ segir Sigrún, sem hefur verið að þróa og framleiða sínar eigin vörur í um átta ár undir nafninu Agndofa, allt frá viðarkortum og skurðarbrettum yfir í handunna viðarolíu í samstarfi við Pharmarctica á Grenivík. Sú olía hefur orðið aðalsöluvara fyrirtækisins og er nú fáanleg víða um land.  Verslun Agndofa er staðsett á annarri hæð í verslunarmiðstöðinni Krónunni í miðbæ Akureyrar. „Þetta er frábær staðsetningin í bænum, en samt dálítið gleymd. Mig langar til að gera mitt til að blása meira lífi í þessa krúttlegu verslunarmiðstöð í göngugötunni,“ segir Sigrún sem hefur trú á því að rýmið verði aðlaðandi bæði fyrir heimamenn og ferðafólk, sérstaklega þá sem hafa áhuga á handverki, orku og andlegum málefnum.

Ég treysti því að þeir sem eiga erindi hingað finni mig. Þetta er ekki hefðbundin verslun, þetta er hluti af mínum lífsstíl og hugsjón.

Sigrún fyrir utan verslunina Agndofa sem opnar á laugardag á efri hæð Krónunnar í göngugötunni.

Heilagur viður, rúnir og gong

Sigrún, sem er menntaður grafískur hönnuður, hefur lengi starfað að eigin sköpun og selt sínar vörur í gegnum vefverslun Agndofa og á alls kyns handverks mörkuðum „Þetta er bara næsta skref í minni þróun. Að opna formlega verslun og vinnustofu er gamall draumur þar sem fólk getur nálgast vörurnar mínar á einfaldari hátt og líka bara komið og verið,“ segir Sigrún spennt.

Í versluninni verður ekki eingöngu frameiðsla Sigrúnar til sölu heldur líka vörur sem eru sérstaklega hugsaðar fyrir nútímanornir eins og töfrakerti með kristöllum og ásetningi, palo santo (heilagur viður), reykelsi og alls kyns gjafavörur sem tengjast andlegri iðkun og hugleiðslu. „Nornin í mér fær aðeins að spretta út hérna og þetta verður eiginlega hálfgerð galdrabúð,“ segir Sigrún, sem er einmitt með kveikt á töfrakerti í versluninni með galdri fyrir velgengni þegar blaðamaður leit þar við. „Ég er líka með rúnir, bæði handunnar og innfluttar. Þá langar mig til þess að fólk geti komið hingað inn og grafið sínar eigin rúnir á staðnum. Ég sé fyrir mér að ferðamenn gætu t.d. haft mikinn áhuga á því að taka sinn eiginn persónulega rúnastein með heim úr ferðalagi til Íslands.“

Heilagur viður og rúnir á indverskum steinum. Sigrún sér fyrir sér að bjóða fólki á að grafa sína eigin rún í íslenska steina á staðnum. 

Þá ætlar Sigrún sér líka að selja gong og önnur hljóðfæri tengd hljóðheilun í versluninni og hyggst smá saman bæta við vörum og tólum sem styðja við djúpa slökun og sjálfsvinnu. Sjálf hefur hún algjörlega heillast af hljóðheilun en vikulega býður hún upp á gong-slökunartíma hjá Sjúkraþjálfun Akureyrar í Sunnuhlíð (Finna má upplýsingar um tímana á Facebooksíðunni Umvefja).

Nornin í mér fær aðeins að spretta út hérna og þetta verður eiginlega hálfgerð galdrabúð.

Sigrún fór að horfa inná við í kjölfar veikinda. Í dag hlustar hún betur á sjálfa sig og vinnur með eigin orku. Að opna eigin verslun og vinnustofu hefur verið gamall draumur sem loksins er orðinn að veruleika í Hafnarstræti 97.

Veikindin kveiktu áhuga á andlegum málum

Í verslun Agndofa verður einnig hægt að kaupa kakóbolla í brottnámsmáli, sem hentar vel þeim sem vilja smakka hreint kakó, en Agndofa verður með vörur til sölu frá Kakógulli. Þá stefnir Sigrún á að vera með ýmsa viðburði í boði í Agndofa eins og kakóspjall þar sem fólk getur hist, spjallað, dregið orkuspil, notið hreins kakós og tengst inn á við. „Mig langar að þetta verði rými fyrir fólk að vera, læra, forvitnast og tengjast, hvort sem það kemur bara til að fá sér kakóbolla eða til að grafa í eigin dýptir,“ segir Sigrún sem var sjálf tilneydd til að leita inn á við fyrir nokkrum árum.

Saga Sigrúnar og Agndofa er nefnilega ekki aðeins saga frumkvöðulsins heldur líka saga um persónulega umbreytingu og þroska. Fyrir um tíu árum greindist Sigrún með heiftarlega vefjagigt og þurfti þá að staldra við, horfa inn á við og vinna sig út úr veikindum en á tímabili var hún svo illa á sig komin að hún þurfti að ganga við hækjur. Þetta varð jafnframt upphafið að áhuga hennar á andlegum málefnum. „Þegar líkaminn gaf sig, þurfti ég að hlusta og fara að lifa í takt við mínar þarfir,“ segir hún en á síðustu tveimur árum hefur hún gengið í gegnum miklar breytingar í persónulega lífinu í tengslum við skilnað og flutninga. „Lífið tók hreinlega nýja stefnu og ég treysti því að það sé verið að leiða mig þangað sem ég á að fara. Agndofa er hluti af því.“ Aðspurð út í hvernig heilsan sé í dag segist Sigrún þakklát fyrir að hafa náð að vinna sig út úr veikindunum, en hún þurfi að fara vel með sig því vefjagigtin sé alltaf undirliggjandi. Segist hún hafa lært að misbjóða sér ekki með álagi og vinnu og nái þannig að halda sér góðri. Nú hlusti hún betur á sjálfa sig og vinni með eigin orku.

Ofurfæða úr kakóbaunum. Vörur frá Kakóguli verða til sölu hjá Agndofa en einnig verður hægt að fá hreint serímóníukakó þar í brottnámsbolla.

Opnunarhátíð með kakósmakki og tónlist

Þegar Sigrún er spurð að því hvort hún telji að það sé markaður fyrir svo sérhæfða verslun á Akureyri, og það á efri hæð í svolítið gleymdri verslunarmiðstöð, segist hún vona það. Segir hún að það sé ákveðinn hópur á svæðinu sem sé nú þegar að panta þessar vörur á netinu en væri til í að geta nálgast þær í verslun í heimabyggð. Þá sé líka mikil vakning í gangi í samfélaginu varðandi andleg málefni og fólk opnara en oft áður fyrir óhefðbundnum lífstíl og lausnum.

Agndofa verslunin verður formlega opnuð á morgun, laugardaginn 14. júní með opnunarhátíð milli kl. 13 og 16 þar sem gestir geta smakkað hreint kakó frá Kakógulli, kynnt sér vörurnar í versluninni og andað að sér stemningunni sem Sigrún er að skapa í hjarta bæjarins. „Ég treysti því að þeir sem eiga erindi hingað finni mig. Þetta er ekki hefðbundin verslun, þetta er hluti af mínum lífsstíl og hugsjón,“ segir Sigrún að lokum og bendir á samfélagsmiðla Agndofa varðandi opnunartíma á versluninni en stefnt er á opnun fjóra daga í viku.