Norðlensk hönnun og handverk í Hlíðarbæ
Aðventusýning Norðlenskrar hönnunar og handverks verður í Hlíðarbæ rétt norðan Akureyrar um helgina, opið 11-17 á laugardag og sunnudag.
Þátttakendur í sýningunni eru af öllu Norðurlandi, meirihlutinn frá Akureyri, en einnig allt frá Skagafirði austur í Þistilfjörð. Sýnendur verða hátt í 30, kynna og selja vörur sínar, hönnun, handverk, list og sælkeravöru. Nýja kaffibrennslan býður upp á ilmandi kaffi og sýnendur bjóða upp á piparkökur með kaffinu.
Aðstandendur sýningarinnar hvetja fólk til að koma, hittast og njóta góðra stunda í upphafi aðventu með skapandi fólki og vönduðum vörum úr héraði, í gamla góða Hlíðarbæ, eins og segir í tilkynningu.
Einstaklingar og fyrirtæki sem verða með vörur sínar á sýningunni í Hlíðarbæ:
- Blúndur og blóm
- BRYN Design
- Draumablá
- Glansverkstæðið
- HALLDORA
- Helena saumar
- Hilma - hönnun og handverk
- KAOS - Íslensk hönnun og handverk
- Keramikloftið
- KRÓ Design
- LINDA ÓLA art
- Mynthringar og allskonar
- Ósk barnaföt
- Sif hannar
- Stefán Traustason
- Sælusápur
- Tré og föndur
- Tréskurður
- Töfra handverk
- Vonarbrú
- Ögn Icelandic bækurnar
- Öxnhólshandverk
Í sælkeradeildinni verða eftirtalin:
- Huldubúð
- Garðurinn minn
- Reykkofinn við höfnina
- Korg Kaffibrennsla
- Öxnhóls kjöt
- Kökubasar Kvenfélags Hörgdæla á laugardeginum
- Kökubasar Almannaheillafélgsins Vonarbrúar á sunnudeginum
Myndirnar hér að neðan tók Þorgeir Baldursson á haustsýningu á norðlensku handverki og hönnun í Hlíðarbæ 15. október í haust.