Fara í efni
Mannlíf

„Niðurstaðan staðfestir ábyrgan rekstur“

Miðbær Akureyrar og nágrenni. Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrri hluta ársins var neikvæð um 362,7 milljónir króna, en engu að síður 125 milljónum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Um 87 milljóna króna halli á rekstri samstæðunnar, sem er 117 milljónum verri afkoma en gert var ráð fyrir. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Um 87 milljóna króna halli varð á rekstri samstæðu Akureyrarbæjar fyrri hluta ársins en gert hafði verið ráð fyrir 30 milljóna króna afgangi á tímabilinu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri segir niðurstöður fyrstu sex mánaða ársins  staðfesta sterkan og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins. Núverandi bæjarstjórnarmeirihluti Framsóknarflokks, L-listans og Sjálfstæðisflokksins tók við stjórnartaumunum í byrjun júní að loknum kosningum, en áður höfðu L-listinn, Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn starfað saman í meirihluta árin þar á undan. 

„Minniháttar halli á samstæðunni miðað við áætlun skýrist að mestu af áhrifum þrálátrar verðbólgu og hærri lífeyrisskuldbindinga en lagt var upp með við gerð fjárhagsáætlunar. Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs er hins vegar betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Lykilatriði er að niðurstaðan sýnir að reksturinn skapar gott svigrúm fyrir áframhaldandi fjárfestingar og góða þjónustu við íbúa,“ segir Berglind Ósk á vef bæjarins.

A-hlutinn neikvæður um 363 milljónir króna

Fram kemur á vef Akureyrarbæjar að rekstrarniðurstaða A-hluta fyrri hluta ársins hafi verið neikvæð um 362,7 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hann yrði 486,9 milljónir króna. Afkoma A-hluta sé því 124,2 milljónum króna betri en áætlun hafði gert ráð fyrir.

Starfsemi sveitarfélagsins er skipt upp í tvo hluta.

    • Til A hluta telst sveitarsjóður, sem er Aðalsjóður sveitarfélagsins, auk annarra sjóða og stofnana er sinna starfsemi sem að hluta eða öllu leyti eru fjármögnuð með skatttekjum. Auk Aðalsjóðs er um að ræða Fasteignir Akureyrarbæjar, Eignasjóður gatna og Umhverfismiðstöð.
    • Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum; Félagslegar íbúðir, Strætisvagnar Akureyrar, Hlíðarfjall, Hafnasamlag Norðurlands og Norðurorka.

Í tilkynningu Akureyrarbæjar eru eftirfarandi niðurstöður úr rekstri samstæðunnar:

  • Tekjur samstæðunnar voru samtals 21.527 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að þær yrðu 20.824 milljónir.
  • Skatttekjur voru 11.346 milljónir sem er 354 milljónum yfir áætlun.
  • Tekjur frá Jöfnunarsjóði voru 3.392,9 milljónir sem er 32,1 milljónum undir áætlun.
  • Aðrar tekjur voru 6.789 milljónir króna sem er 382 milljón krónum umfram áætlun.
  • Tekjur tímabilsins eru því samtals 703,4 milljónum hærri en áætlun hafði gert ráð fyrir.

Rekstrargjöld samstæðunnar voru rúmum 684 milljónum króna yfir áætlun. Þar af voru laun og launatengd gjöld tæplega tæplega 294 milljónum yfir áætlun og lífeyrisskuldbindingar tæpum 387 milljónum yfir áætlun.

  • Rekstrargjöld samstæðunnar fyrir afskriftir voru samtals 18.980,2 milljónir króna sem er 684,4 milljónum yfir áætlun.
  • Laun og launatengd gjöld voru 12.037,7 milljónir en áætlun hafði gert ráð fyrir 11.743,9 milljónum.
  • Lífeyrisskuldbindingar hækka talsvert og námu 812 milljónum króna og voru 386,9 milljónum króna umfram áætlun.
  • Annar rekstrarkostnaður var 6.130,6 milljónir króna sem er 3,7 milljónum yfir áætlun.

Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur voru 207 milljónum króna yfir áætlun, en afskriftir rúmum 72 milljónum undir áætlun. Afborganir lána námu tæpum 885 milljónum króna og ný langtímalan rétt rúmum 1,5 milljörðum króna.

  • Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur voru 1.367,3 milljónir króna sem er 207,5 milljónum yfir áætlun.
  • Afskriftir voru 1.197,8 milljónir samanborið við 1.270,1 milljónir í áætlun.
  • Samkvæmt sjóðsstreymi samstæðunnar var veltufé frá rekstri 2.317,7 milljónir eða 10,77% af tekjum.
  • Fjárfestingahreyfingar voru 2.178,9 milljónir og fjármögnunarhreyfingar jákvæðar um 611,8 milljónir.
  • Afborganir lána voru 884,7 milljónir króna.
  • Ný langtíma lán námu 1.505,4 milljónum króna.
  • Handbært fé var 3.779,3 milljónir í lok júní.
  • Fastafjármunir samstæðunnar voru 71.737 milljónir króna og veltufjármunir 9.710,5 milljónir.
  • Eignir voru samtals 81.447,5 milljónir samanborið við 77.301,2 milljónir í árslok 2025.
  • Eigið fé var 30.513 milljónir króna en var 30.602 milljónir um síðustu áramót.
  • Langtímaskuldir og skuldbindingar voru 40.818 milljónir en voru 38.944 milljónir í lok síðasta árs.
  • Skammtímaskuldir voru 10.116 milljónir króna en voru 7.755 milljónir um síðustu áramót.
  • Veltufjárhlutfall var 0,96 á móti 0,93 í lok síðasta árs. Eiginfjárhlutfall var 37,5% í lok júní.

Árshlutareikningurinn fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði í gærmorgun.