Næring er meira en það sem fer á matardiskinn
„Þegar við hugsum um næringu hugsum við kannski flest fyrst um mat. Hvað við borðum, hversu oft og hvort það telst „hollt“ eða ekki. Það er fullkomlega eðlilegt þar sem matur er grunnur að líkamlegri heilsu og skiptir máli fyrir orku, uppbyggingu og starfsemi líkamans.“
Þannig hefst nýr heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur. Hún og Guðrún Arngrímsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast aðra hverja viku.
Hrafnhildur áfram:
„Næring nær samt sem áður yfir mun fleira en það sem við setjum á matardiskinn. Við erum ekki bara líkami sem þarf eldsneyti. Tilvist okkar er stærri en það. Við erum heildrænar manneskjur þar sem fjölmargir þættir hafa áhrif hver á annan; tilfinningar, tengsl, upplifanir og hvernig við túlkum heiminn. Allt þetta hefur áhrif á hvernig okkur líður og hvernig líkaminn okkar starfar. Það sem við „tökum inn“ yfir daginn er því ekki eingöngu matur, heldur líka allt það sem við upplifum og erum í tengslum við.“
Pistill Hrafnhildar: „Næring“ – Meira en það sem er á disknum