Fara í efni
Mannlíf

Minnast sonar, bróður og vinar á Bíladögum

Á ljósmyndinni er Hrafn Breiðfjörð, en hann lést af slysförum árið 2024. Bróðir Hrafns, Benidikt Breiðfjörð Ellertsson (t.v.) og faðir hans, Ellert Alexandersson (t.h.), mættu til minningar um góðan bróður og son á Bíladaga með Fordinn hans Hrafns. Mynd: Þorgeir Baldursson

Fallega dökkrauður Ford Mustang GT vakti verðskuldaða athygli gesta á bílasýningunni í Boganum á 17. júní. Sýningin er lokahnykkur Bíladaga, og eflaust saga á bak við hvern einasta bíl, en saga Fordsins er einstök og hjartnæm. Fyrir framan bílinn var innrömmuð ljósmynd, af ungum manni sem stillti sér stoltur upp fyrir framan þennan sama bíl. Hrafn Breiðfjörð hét þessi ungi maður, eigandi bílsins. 

Hann elskaði Bíladaga og þeir voru einfaldlega stærsti viðburður ársins

Hrafn lést af slysförum, 7. mars árið 2024, mánuði áður en hann hefði orðið tvítugur. Hann og vinur hans voru að leika sér á mótorhjólum í Heiðmörk þegar slysið varð. Faðir Hrafns, Ellert Alexandersson, var hrærður og þakklátur eftir Bíladagahelgina, þegar blaðamaður Akureyri.net heyrði í honum. „Hrafn elskaði þennan bíl, hann var bara eins og barnið hans. Það var bara þannig.“

 

T.v. Hrafn Breiðfjörð. T.h. Mustanginn hans Hrafns á fleygiferð (ljósmynd: B&B Kristinsson). Myndir: aðsendar.

Ætlaði með bílinn uppfærðan á Bíladaga 2024

Fjölskylda Hrafns og vinir komu með bílinn norður fyrir Bíladaga, til þess að minnast Hrafns. „Sonur minn var mikill bílaáhugamaður,“ segir Ellert. „Hann elskaði Bíladaga og þeir voru einfaldlega stærsti viðburður ársins. Þegar hann lést, hafði hann verið á fullu að undirbúa Bíladaga á síðasta ári, búinn að kaupa fullt af varahlutum og viðbótum til þess að gera bílinn flottari. Hann náði svo ekki að klára.“

„Hrafn átti mjög stóran vinahóp,“ segir Ellert. „Þeir komu að máli við mig og sögðu að þeir vildu klára bílinn og koma honum aftur á Bíladaga. Það náðist náttúrulega ekki í fyrra, en svo eru þessir yndislegu vinir búnir að vera að skrúfa, græja og gera og bíllinn er klár núna. Eins og alvöru bílaáhugamenn voru þeir samt á síðustu stundu, en það hafðist.“ 

 

Ellert og Benidikt með vinum Hrafns. F.v. Salómon, Benidikt, Skorri, Tristan, Birta, Halldór, Emma og Ellert. Mynd: Þorgeir Baldurson

Hrærður yfir hlýjum móttökum Bílaklúbbsins

Ellert hafði samband við Jón Gunnlaug Stefánsson og Einar Gunnlaugsson hjá Bílaklúbbi Akureyrar og sagði þeim söguna á bak við bílinn. „Þeir tóku strax ótrúlega vel í þessa hugmynd okkar, og sögðu að bíllinn ætti að koma og vera á bílasýningunni á besta stað. Mér þykir ofboðslega vænt um móttökurnar sem við fengum á Akureyri. Við hjónin vorum búin að ákveða að styrkja Bílaklúbbinn í minningu Hrafns, og það höfum við gert.“ Fordinn er svo væntanlegur á Bíladaga aftur á næsta ári, en Ellert segir að Hrafn hafi verið búinn að kaupa enn meira til þess að bæta bílinn, sem verður sett upp fyrir næsta ár. „Þessi bíll kemur aftur á næsta ári,“ sögðu þeir hjá Bílaklúbbnum þegar við kvöddum.

„Það toppaði helgina alveg, hvað það var vel tekið á móti okkur og vinum Hrafns með bílinn. Þetta er búinn að vera tilfinningarússibani en mér líður ofboðslega vel núna, við náðum markmiðinu. Bíllinn fór á sýninguna og fékk mikla athygli,“ segir Ellert Alexandersson að lokum. 

Ellert Alexandersson og Einar Gunnlaugsson, formaður Bílaklúbbs Akureyrar, takast í hendur eftir að Ellert tilkynnti á sýningunni að foreldrar Hrafns heitins hefðu ákveðið að styrkja klúbbinn um 500 þúsund krónur. Á milli þeirra er Jón Gunnlaugur Stefánsson, formaður bílasýningarnefndar klúbbsins.