Fara í efni
Mannlíf

Mikil jólastemning á Ráðhústorgi

Myndir: Þorgeir Baldursson

Mikið fjölmenni var samankomið á Ráðhústorgi í dag þegar ungur drengur, Atli Einarsson, tendraði ljósin á jólatrénu sem Akureyrarbær fékk að gjöf frá vinabænum Randers í Danmörku, eins og áratuga hefð er fyrir.

Segja má að jólastemningin sé nú formlega komin á torgið því áður en fjöldinn snéri sér að trénu stóra var Jólaþorpið opnað; þorpið samanstendur af níu fallegum jólahúsum að þessu sinni og þar verður ýmis varningur á boðstólum allar helgar fram að jólum. Þorpið verður opið kl. 14-18 á laugardögum og 14-17 á sunnudögum.

Þorgeir Baldursson mætti á svæðið með myndavélina og fangað jólastemninguna.

Atli Einarsson ýtir á takka og tendrar ljósin á jólatrénu sem Randers færði Akureyrarbæ að gjöf. Til hægri eru móðir Atla, Karen Mist Kristjánsdóttir og litla systir hans, Salka Einarsdóttir. Geir Kristinn Aðalsteinsson, konsúll Dana á Akureyri, er lengst til vinstri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri við hið hans og síðan Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi.

Dagskráin á torginu í dag var fjölbreytt; Lúðrasveit Akureyrar spilar jólalög undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur, barnakórar Akureyrarkirkju sungu undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur við undirleik Péturs Nóa Stefánssonar og nokkrar ævintýrapersónur úr veröld leikhússins brugðu á leik: Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur. Hinir ómissandi jólasveinar komu vitaskuld í heimsókn og þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, fluttu stutt ávörp.