Fara í efni
Mannlíf

Miðaldadagar á Gásum vinsælir – MYNDIR

Mynd: Þorgeir Baldursson

Árlegir Miðaldadagar á Gásum, hinum sögufræga verslunarstað við Eyjafjörð, voru um helgina. Þar gafst gestum kostur á að upplifa lífið eins og það var á miðöldum með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna og margir gerðu sér ferð að Gásum eins og undanfarin ár. Þorgeir Baldursson var einn þeirra og að sjálfsögðu var myndavélin með í för.

Fornar listir voru sýndar, gestir gátu kynnt sér eldamennsku eins og hún er talin hafa verið á miðöldum og ýmsa aðra forna siði. Hægt var að spreyta sig í bogfimi, rúnalesari var í Gásakaupstað og handverksfólk á svæðinu seldi varning sinn, svo eitthvað sé nefnd.