Meinleysislegir ávextir en sumir þeirra bíta fast
„Paprikuávextir eru svo sannarlega ekki allir þar sem þeir eru séðir. Sumir eru stórir, safaríkir og sætir, aðrir svo hvassir að örlítill biti getur bitið hraustlega til baka. Ávextirnir geta verið langir og mjóir, litlir og hnöttóttir og í ótal litbrigðum, til að mynda grænir, gulir, appelsínugulir, nær svartir og svo auðvitað rauðir. Það er því ekki að undra að þessir litríku ávextir hafi lengi vakið athygli mannsins.“
Þannig hefst MATARÞRÁ-INN dagsins, vikulegur pistill Þráins Lárussonar fyrir akureyri.net um mat.
Ávöxtum paprikutegunda má gróflega skipta í tvo hópa: annars vegar hinar mildu og sætu paprikur og hins vegar hinar bragðhvössu eldpaprikur, chile. Þráinn segir að þessir meinleysislegu ávextir geti látið hressilega finna fyrir sér; sumir séu tiltölulega mildir, „aðrir bíta svo fast að örlítill biti nægir flestum.“
Styrkleikinn er gefinn upp í Scoville-einingum. Margir kannast við Jalapeño sem Þráinn segir að mælist yfirleitt á bilinu 2.500–8.000 einingar, en habanero, af tegundinni Capsicum chinense, oft um 100.000–350.000. „Þegar þetta er skrifað á Pepper X heimsmetið samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Hann var þróaður af bandaríska ræktandanum Ed Currie og mældist að meðaltali 2.693.000 Scoville-einingar,“ segir Þráinn.
Pistill Þráins: Chile eða chili