Fara í efni
Mannlíf

Matur: Tveir ólíkir heimar við opinn eld

„Án nokkurs vafa er beislun elds mikilvægasta uppgötvun mannkynsins,“ segir Þráinn Lárusson í nýjum matarþistli í röðinni ÞRÁ-INN. 

Eldurinn hélt á mönnum hita, lýsti upp myrkrið og hélt rándýrum frá, segir hann. „Að safnast saman í kringum eld stuðlaði að samfélagsmyndun og samvinnu.“  Þráinn segir að ef skráð væri heimsmet í útigrillaeign miðað við höfðatölu væru Íslendingar líklega efstir á blaði. „Grill standa á svölum, veröndum og í görðum um allt land og þegar veður leyfir fyllist loftið fljótt af grillilm.“

Þráinn fjallar sem sagt um grill í pistli dagsins og aftur eftir viku. Í þessari fyrri grein af tveimur fjallar hann almennt um uppruna og hugmyndafræði grills og barbecue sem eru alls ekki sami hluturinn ólíkt því sem margir halda. Í seinni greininni eftir viku mun hann reyna að varpa ljósi á það hvernig megi ná sem bestum árangri við matseld við eld, meðal annars með hliðsjón af mismunandi hráefni. 

Pistill Þráins: Tveir ólíkir heimar við opinn eld