Matur ömmu varð að menningarlegu stórveldi
„Það hefur lengi verið rík tilhneiging í Evrópu að líta niður á bandaríska matarmenningu. Bandaríkin eigi skyndibitann og hamborgarann en þegar komið sé að raunverulegri matargerð hafi þau lítið fram að færa.“
Þetta segir Þráinn Lárusson í nýjum pistli í þeirra geysivinsællu röð, MATARÞRÁ-INN og bætir við að skiljanlegt sé að þessi mynd hafi orðið til. „Bandaríkin eru ung þjóð í samanburði við Evrópu og stór hluti matarmenningar sem þar finnst kemur frá Evrópu.“
Myndin er þó ekki svona einföld, segir Þráinn. Fjölmargar sterkar svæðisbundnar matarhefðir sé að finna í landinu, en aðeins örfá dæmi um það sem kalla mætti sjálfstæða bandaríska matarmenningu. Þrjár standa þar sérstaklega upp úr, að hans mati, og allar eiga þær rætur í Suðurríkjunum. Síðar í haust fjallar Þráinn um Soul food, matarmenningu svartra Bandaríkjamanna í Suðurríkjunum, en hinum tveimur, Cajun og Creole, gerir hann skil í þessum pistli.
Vert er að geta þess að Þráinn mun á næstunni taka fyrir matarmenningu hinna ýmsu þjóða.
- Pistill dagsins: Cajun og creole