Fara í efni
Mannlíf

Mathöllin á Glerártorgi opnuð snemmsumars

HAF STUDIO sér um hönnunina mathallarinnar á Glerártorgi.

Fyrsta mathöllin á Akureyri verður opnuð í byrjun sumars á Glerártorgi. Stefnt er að því að sex veitingastaðir verði í rýminu og eru framkvæmdir nú þegar hafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glerártorgi í morgun.

Akureyri.net hefur fjallað um fyrirhugaða mathöll áður, m.a. um nafnasamkeppni um mitt síðasta ár, þegar til stóð að höllin yrði opnuð  þá um haustið. Þá kom fram að margir væru spenntir og með sterkar skoðanir á því hvað mathöllinn ætti að geta, t.d. Gefjun mathöll, Hekla mathöll og Iðunn mathöll. Öll þau heiti vísa í starfsemi verksmiðjanna sem voru áður á svæðinu, eins og það er orðað.

Mathöllin verður í norðaustur hluta Glerártorgs þar sem Vodafone og Kaffi Torg voru áður og verður opin umfram almennan opnunartíma  í verslunarmiðstöðinni, að því er segir í tilkynningunni. Svangir og þyrstir gestir mathallarinnar þurfi því ekki að hverfa af svæðinu þegar verslunum verði lokað.

„Það er löngu kominn tími á að opna mathöll á Akureyri og við stukkum á tækifærið þegar það gafst,“ segir Kristján Ólafur Sigríðarson, rekstrarstjóri mathallarinnar, í tilkynningunni. „Um leið og við fórum af stað með verkefnið spruttu upp hinar og þessar hugmyndir um veitingastaði í mathöllinni og við hlökkum til að sjá allar þær nýju hugmyndir sem koma til með að berast okkur nú þegar við erum formlega búin að boða komu okkar. Ég hvet alla áhugasama um að hafa samband við okkur.“

Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar næstkomandi. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Kristján, hann er með netfangið kristjan@darko.is