Fara í efni
Mannlíf

María Catharina komin heim í Þór/KA

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnukonan María Catharina Ólafsdóttir Gros er komin aftur í Þór/KA eftir að hafa leikið með Celtic í Skotlandi í tæpt ár. María Catharina skrifaði undir samning við félagið í dag út leiktíðina 2023.

„María Catharina hélt utan til Skotlands í atvinnumennsku á miðju tímabili í fyrra þegar hún gerði samning við hið sögufræga félag Celtic. Þar var hún í vetur og fram á vor, en rifti samningi sínum að lokinni leiktíðinni. Hún hefur að mestu spilað sem kantmaður og framherji, en hjá Celtic kom hún inn í stöðu vængbakvarðar. María spilaði 26 leiki með Celtic og skoraði fimm mörk,“ segir á vef Þórs/KA.

Eitt ár er síðan hún spilaði síðast leik með Þór/KA - 11. júlí 2021. María Catharina, sem varð 19 ára í febrúar, kom fyrst við sögu með meistaraflokki hjá Þór/KA 2018, þá 15 ára gömul. Hún á að baki 58 meistaraflokksleiki og níu mörk, flesta með Þór/KA, en einnig þrjá með Hömrunum þegar hún var þar í láni hluta sumars 2019. Þá hefur María verið í yngri landsliðum Íslands og á samtals að baki 29 leiki og þrjú mörk með U19, U17 og U16 landsliðunum.

María Catharina í morgun ásamt Jóni Stefáni Jónssyni, öðrum þjálfara Þórs/KA, og Dóru Sigtryggsdóttur formanns kvennaráðs.