Fara í efni
Mannlíf

Margt er sannarlega skrýtið í kýrhausnum

„Af hverju sitja Sturlungar fyrir mér hér? hugsaði ég meðan ég reyndi að skilja aðstæður og ná áttum. Eru þetta skilaboð frá afa? Frá Sturlu frænda, frá Sighvati frænda? Þeir eru nú allir horfnir inn í aðra vídd, afi fyrir heilum 35 árum.“

Orrablót, pistlar Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, birtast annan hvern föstudag á akureyri.net. Setningin að ofan er úr blóti dagsins. 

Fjölskyldan hafði leigt sér íbúð af handahófi í London í sumar. Orra þótti sæta tíðindum að í öndvegi á bókahillu í betri stofunni var að finna bókmenntalegt þrekvirki. „Og giskið nú? Var það Shakespeare eins og hann leggur sig? Dickens, Austen, Orwell, Chaucer, Woolf? Nei, ekki aldeilis, heldur Sturlunga saga. Segi ég og skrifa. Sturlunga saga. Í handahófskenndri íbúð í Lundúnum. Og það á íslensku en ekki í enskri þýðingu.“

Sturlunga hefur lifað með Orra Páli frá því hann var lítið barn. „Sturlunga var minn Andrés önd, minn Tarzan. Afi á Grund hafði gríðarlegt dálæti á verkinu og las Sturlungu aftur á bak og áfram og á hvolfi undir það síðasta. Í mínum nánasta frændgarði eru Snorri, Þórður, Sighvatur, Sturla og annar Sturla.“

Orrablót dagsins: Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!