Fara í efni
Mannlíf

Ljósin og myrkrið í bænum

Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.

Í tilefni 159 ára afmælis Akureyrarbæjar á sunnudaginn eru valin hús lýst á litríkan, listrænan og skemmtilegan hátt um helgina. Fólk naut dýrðarinnar á föstudagskvöldi og aftur verður boðið upp á ljósaveislu í kvöld, laugardagskvöld.

Vídeólistaverk Heimis Hlöðverssonar, sem var unnið sérstaklega fyrir Menningarhúsið Hof í tilefni 10+1 árs afmælis þess, var frumsýnt í gærkvöldi og vídeólistaverkum var einnig varpað á Listasafnið á Akureyri. Önnur hús voru Akureyrarkirkja, Glerárkirkja og aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva, auk þess sem ljósadýrð var í Lystigarðinum og víðar um bæinn. 

  • Menningarhúsið Hof – Catalysis #2 – Heimir Hlöðversson
  • Akureyrarkirkja – Bernharð Már Sveinsson
  • Glerárkirkja – Hinrik Svansson
  • Listasafnið á Akureyri – Arna Valsdóttir og Sigga Björg Sigurðardóttir
  • Aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva – Bernharð Már Sveinsson
  • Lystigarður Akureyrar – Starfsfólk garðsins og Bernharð Már Sveinsson
  • Upplýst svæði um bæinn – Starfsfólk umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar

Að neðan eru myndir af Listasafninu, Akureyrarkirkju, af húsi Nökkva og úr Lystigarðinum. Meira eftir laugardagskvöldið.