Ljósaganga gegn kynbundnu ofbeldi
Í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum, fer fram ljósaganga frá Ráðhústorginu og samkoma á Amtsbókasafninu í beinu framhaldi. Ljósagangan hefst kl. 16:30, en viðburðurinn er haldinn í tilefni af 16 daga átaki gegn ofbeldi.
Gengið verður frá Ráðhústorginu að Amtsbókasafninu þar sem Agnes Blöndal aðstoðarsaksóknari flytur erindi og nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri og Háskólanum á Akureyri taka þátt.
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991, en tímabil þess tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember, sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum, og 10. desember, sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis og styðja við réttindi, réttlæti og aðgerðir gegn ofbeldi.
Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn hyrna og fulltrúar nemenda og stúdenta í MA og HA. Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi og lögregluþjónar munu leiða gönguna. Á Amtsbókasafninu bíða heitir drykkir og fróðleg erindi.