Lítið, snoturt hús og með þeim elstu í bænum
„Fáar götur státa af hærri meðalaldri en Grundargata. Við þessa þvergötu norður af Strandgötu, sem er aðeins um 90 metrar að lengd, standa sex hús, það yngsta byggt 1928 og það elsta byggt 1885 eða 86. Um miðbik götunnar vestanmegin standa tvö hús, nr. 3 og 5, sem gætu vart verið ólíkari á að líta.“
Þannig hefst enn einn stórfróðlegur og skemmtilegur pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins. Í dag fjallar Arnór Bliki um Grundargötu 5 á Akureyri.
Hann heldur áfram:
„Númer 3 er tvær hæðir með aflíðandi þaki og valmaþaki öðru megin og steyptum stafni norðanmegin en númer 5 er einfalt timburhús með háu risi. En í upphafi 20. aldar voru þessi tvö hús þó næsta áþekk í útliti. Þess má reyndar geta, að handan götunnar, á horninu við Gránufélagsgötu, stendur Grundargata 6, sem einnig var svipaðrar gerðar en er nú með háu, gaflsneiddu mansardþaki. Á fyrsta áratug 20. aldar voru þessi þrjú hús öll næsta svipuð að gerð, ein hæð með háu risi. Síðari tíma viðbætur hafa gjörbreytt tveimur þessara húsa, en eitt þeirra er nokkurn veginn óbreytt að ytra byrði frá upphaflegri gerð. Og það er Grundargata, sem í ár er 130 ára en húsið er byggt vorið og sumarið árið 1896.“
Pistill Arnórs Blika: Grundargata 5