Lífið var ekki eintómt hopp og hí í gamla daga
„Ég veit ekki hvort þið hafið veitt því athygli en ég hef í og með verið á léttu nótunum í þessum blótum mínum. Til að fyrirbyggja allan misskilning fer því þó víðs fjarri að lífið í gamla daga hafi verið eintómt hopp og hí. Öðru nær. Yfir okkur hékk alla daga og allar nætur vá sem enginn maður komst hjá að taka alvarlega – kjarnorkuváin.“
Þannig hefst Orrablót dagsins; pistill Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu. Orri Páll skrifar pistil – Orrablót – annan hvern föstudag fyrir akureyri.net.
„Ætli Bubbi Morthens og Utangarðsmenn hafi ekki verið fyrstir til að vekja athygli manns á þessari yfirvofandi og óumflýjanlegu skelfingu árið 1980 í sínu frægasta lagi, Hiroshima,“ skrifar Orri.
Hættan eykst með hverri mínútu
dauðinn fer á stjá
klofvega situr hann á atómbombu
hún fer ekki framhjá
„Það var engin leið að misskilja þessi skilaboð. Bubbi söng þetta af hjartans innlifun, bandvitlaus og ber að ofan, og maður fann að hann meinti hvert einasta orð, hvern einasta staf,“ segir Orri Páll, ungur drengur á Akureyri á þessum árum, og bætir við:
„Dómsdagsspáin var að vísu bundin við suðvesturhorn landsins.“
- Orrablót dagsins: Og guðirnir hlógu á meðan, digrum guðahlátri