Landsmót UMFÍ 50+ hefst á morgun
Keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ hefst í fyrramálið, en mótið er að þessu sinni samstarfsverkefni Ungmennafélags Íslands, Ungmennasambands Eyjafjarðar og Eyjafjarðarsveitar. Formleg mótssetning verður í Íþróttahöllinni á Akureyri á morgun, föstudag, kl. 17.
Keppt verður í ýmsum greinum, hefðbundnum og óhefðbundnum, fram á sunnudag. Aðalkeppnissvæðið og miðstöð mótsins eru í Hrafnagilshverfinu í Eyjafjarðarsveit, en einnig er keppt í nokkrum greinum annars staðar.
Atgangurinn á þessari árlegu íþrótta- og lýðheilsuhátið hinna eldri hefst þó formlega í kvöld, en móttaka og upplýsingamiðstöð verður opin í Grunnskólanum Hrafnagili kl. 18-22 í kvöld.
Þetta er í 14. skipti sem Landsmót UMFÍ 50+ er haldið. Það fyrsta fór fram á Hvammstanga 2011 og hefur mótið verið haldið á ýmsum stöðum á landinu árlega síðan þá, að undanskildum tveimur árum, 2020 og 2021, þegar heimsfaraldur setti strik í reikninginn.
Mótin efla samstöðu sjálfboðaliða
UMFÍ hefur gefið út veglega mótaskrá sem hægt er að fletta á netinu, en þar má finna allar upplýsingar um mótið, svo sem dagskrána, sögu mótanna, fyrri mótsstaði og fleira.
Í blaðinu segir Haukur F. Valtýsson, formaður framkvæmdanefndar mótsins, meðal annars í viðtali: „Mótahald sem þetta krefst samvinnu og samstöðu fólks sem stendur að mótinu. Það er talsvert vandaverk að undirbúa, fjármagna og framkvæma mót eins og þetta. Slík vinna eflir samstöðu hjá sjálfboðaliðum, sem eru í raun tannhjólin í framkvæmd og undirbúningi mótsins. “
Þá er einnig rætt við Þorgerði Guðmundsdóttur, formann UMSE, sem segir meðal annars: „Ég held að Landsmót UMFÍ 50+ muni efla aðildarfélög UMSE með auknum sýnileika, sterkari félagsanda, auknu samstarfi milli félaga og vonandi aukinni þátttöku í íþrótta- og heilsueflandi starfi meðal 50 ára og eldri. Reynslan og tengslin sem skapast við framkvæmd mótsins munu vonandi nýtast félögunum til framtíðar.“
Þorgerður segir sambandið muna öðlast dýrmæta reynslu af skipulagningu og framkvæmd íþrótta- og lýðheilsuviðburðar fyrir markhópinn 50 ára og eldri. „Mót eins og þetta gæti einnig aukið þekkingu á þörfum og áherslum þessa aldurshóps, bæði hvað varðar íþróttaiðkun, aðgengi, þjónustu og félagslega þátttöku. Jafnframt mun reynslan styrkja hæfni aðildarfélaga og sjálboðaliða í samstarfi, móttöku gesta og framkvæmd viðburða eins og þessa. Sú reynsla sem skapast við undirbúning og framkvæmd mótsins mun nýtast til framtíðar við þróun íþrótta- og heilsueflandi verkefna innan UMSE og aðildarfélaga þess,“ segir Þorgerður Guðmundsdóttir, formaður UMSE.
Keppt á fimm stöðum í Eyjafirði
Aðalmótssvæðið og miðstöð mótsins verður í Hrafnagilshverfinu í Eyjafjarðarsveit, en upplýsingamiðstöð verður hvort tveggja í Grunnskólanum Hrafnagili og í Íþróttahöllinni á Akureyri.
Keppnisgreinar eftir staðsetningum:
- Hrafnagilssvæðið: Götuhjólreiðar, sund, badminton, bridds, pokavarp, pílukast, frjálsar íþróttir (úti og inni), brennibolti, frisbígolf, skák, bogfimi, stígvélakast og pönnukökubakstur.
- Golfvöllurinn að Þverá í Eyjafjarðarsveit: Pútt
- Íþróttahöllin á Akureyri: Boccia og ringó
- Skotsvæðið ofan Akureyrar: Skotfimi, riffilgreinar og haglagreinar
- Arnarholtsvöllur, golfvöllurinn Dalvík: Golf
Auk keppnisgreinanna eru ýmsar íþróttagreinar og leikir í boði undir heitinu Fjölskyldufjör, í Hrafnagilshverfinu á sunnudag, svo sem fjölskylduhlaup, pokavarp, göngufótbolti, pútt, frisbígolf, bogfimi og petanque, sem er stundað með steinkúlum og má í stuttu máli líkja að einhverju leyti við boccia.
Dagskrá mótsins
Opna úr Mótaskrá UMFÍ fyrir Landsmót UMFÍ 50+. Smellið á myndina til að opna ritið.
Á myndinni hér að neðan má sjá kort af mótssvæðinu í Hrafnagilshverfinu.

